Bloggið mitt

11.11.2009 01:10 Dans

Var að kenna salsa í fyrsta skiptið á Kaffi Kúltúra. Tókst ágætlega þó svo ég og Edna hefðum mátt vera aðeins skipulagðari. Höfðum of lítinn tíma til að undirbúa okkur.

Annars var nú annað merkilegra sem ég var að sjá í kvöld á ráfi mínu um netið. Í bachata er notað hljóðfæri sem kallast güira og núna sá ég í fyrsta sinn á youtube hvernig maður spilar á það. Þetta er í öllum bachata lögum en ég hef ekki haft hugmynd um hvernig þessi hljóð eru framkölluð. Núna langar mig í güira í jólagjöf!

http://www.youtube.com/watch?v=qBXMK61LxEg

Leggja orð í belg

08.11.2009 11:38 Tiltektardagur

Var með rueda hópinn í fordrykk hjá mér í gær svo ég ákvað að ég skyldi nú taka aðeins til. Og úr varð mesta tiltekt sem ég hef ráðist í síðan ég flutti inn! Fór með heilan kerrufarm úr geymslunni niðri í Sorpu.

Meðal annars henti ég 15 - 20 hólkum af Laphroaig. Hafði bara safnast saman nni í vínskáp hjá mér undanfarin ár. Mamma varð ekkert smá hissa þegar hólkarnir he´ldu bara áfram að koma. Leist ekkert á hvað ég væri mikil fyllibytta.

Þegar ég og mamma vorum svo að leggja síðustu hönd á þrifin rakst mamma á litla bæklinginn sem fylgir hverri flösku af Laphroaig. "Má ekki henda leiðbeiningunum með essu viskíi? Þú virðist ú alveg vera farinn að kunna á það." :).

Allavega, frábært stuð með salsafólkinu á Hótel Sögu í gær og meiriháttar að hafa notað mómentið til að hena öllu þessu drasli. Íbúðin mín hefur stækkað!

Leggja orð í belg

01.11.2009 15:05 Byrjendatími í bachata

Kenndi minn fyrsta tíma í bachata í gær á Kaffi Kúltúra. Tókst virkilega vel. Ótrúlega gaman að kenna fólki dans sem það vissi ekki að væri til við tónlist sem það hafði aldrei heyrt! Og allir virtust vera alveg að fíla þetta :). Verður gaman að sjá hvernig framhaldið verður. Stefnir í að ég verði að kenna einu sinni í viku til skiptis salsa og bachata.

Næsta hátíð verður væntanlega þessi:

http://www.bachatando.be/

5. - 7. mars í Brussel. Fjórir stuttir mánuðir í það!

Leggja orð í belg

27.10.2009 01:12 Sexy and Sensual að baki

Jæja, þá er maður kominn heim eftir mögnuðustu danshelgi ársins! Ég bjóst reyndar við að 500 manna bachatahátíð yrði meiriháttar og þetta stóð undir öllum væntingum! Reyndar var þetta alls ekki bara bachata. Eiginlega jafnmikið salsa og bachata plús svo zouk og kizomba. Fullt af fólki sem kom fyrir salsað en ekki bachatað.

En á einu klikkaði ég! Þegar maður fer á svona hátíð á maður tvímælalaust að vera með einhvers konar nafnspjöld á sér til að geta gefið fólki þó ekki sé nema fullt nafn. (Í mínu tilviki er nefnilega hægt að gúgla mig og sjá allt sem ég hef gert.) Svo rosalega mikið af flottum stelpum sem maður dansaði við en ég man svo ekki nema hvað nokkrar heita. Hvað þá allir strákarnir sem maður kynntist líka.

Sem sagt. Næst vreð ég með heimatilbúin nafnspjöld á mér sem ég gef fólki. Það ræður svo sjálft hvort það vilji hafa samband við mig eða ekki.

Leggja orð í belg

04.10.2009 23:32 Makkinn að komast í lag

Framhaldssagan heldur áfram.

Ég fór og fékk lanað Tiger disk hjá nágranna mínum og ætlaði að ræsa upp með honum en alveg sama sagan. Bara auður skjár. Þá fór ég nú að hugsa. Ég hef reyndar oft lent í ónýtum diskum þegar ég hef sett upp Linux en líkurnar á að allir þessir þrír diskar væru ónýtir voru alltof litlar til að vera raunhæfar. Svo ég fór að hugsa. Og allt í einu birtist ljósapera yfir hausnum á mér! Ég kveikti á myndvarpanum og á veggnum hjá mér birtist þá install glugginn! Setti Leopard diskinn minn aftur í og allt í gúddí með hann auðvitað.

Svo ég tók skjávarpann úr sambandi og setti skjáinn í það tengi á tölvunni og byrjaði að setja upp Leopard í fyrsta sinn síðan ég fékk tölvuna fyrst. En, þegar ég ætlaði að gera eitthvað ríper þá gat ég það ekki. Eina sem mér bauðst var að eyða öllu og setja tölvuna alveg upp aftur. Þá datt mér í hug að stinga USB disknum sem innihélt Time Machine backupið í samband en ég hafði tekið öll usb tæki úr sambandi. Ég skyldi þó ekki geta sett allt upp á hann. Og jú, hann birtist og svo valdi ég að setja allt nema "Files and folders" inn frá Time Machine backupinu. Og Voila!! Tölvan bara alveg eins og hún var nema það að JDeveloper virkar núna og hún er að nota USB diskinn sem ræsidisk. Makkinn rúlar!!

Svo þá er bara málið að taka til í "Files and folders" á internal diskinum og setja hann svo upp alveg aftur og nota Time Machine backupið

Hvað getur maður lært af þessu? Jú. Ekki reyna að taka Java út handvirkt, börnin góð. Eins og það er nú auðvelt í öðrum stýrikerfum þá er það víst eitthvað sem Mac OS fílar ekkert vel.

Leggja orð í belg

04.10.2009 10:55 OS X í henglum!

Jæja, nú er ég víst að fara í fyrstu enduruppsetningu á hlébarðanum mínum. Ætlaði nú í eitt skipti fyrir öll að laga þetta javavandamál, að JDeveloper ræsti sig aldrei. Fann eitthvað á netinu þar sem einhver gaur var að segja hvernig maður getur tekið java alveg út og sett það inn aftur. Verð nú að segja að javauppsetning og niðurtekning er miklu einfaldari í Windows og Linux.

En allavega, það sem átti að gera var að henda fýsískt út javaskrám undir /Library og /System og fleiri stöðum. Síðan átti að keyra pkgutil --forget á þessa pakka. Eitthvað virtist ekki eins og það átti að vera því þegar ég var búinn að henda því sem átti að henda þá fóru ýmis forrit að klikka. Þar á meðal pkgutil! Og 10.5.8 combo update pakkinn vildi heldur ekki keyrast inn.

Svo ég fann Leopard update diskinn og ætlaði að keyra eitthvað Mac OS repair dæmi. En þá tók ekki betra við. Vélin ræsti ekki upp á disknum. Bara norðurljós á skjánum og ekkert meira! Sem betur fer er ég með nettengdan lappa því ég þurfti að gúgla það hvernig maður tekur ræsidisk úr makka sem nær ekki að lóda neinu stýrikerfi.

Svo ég fann Tiger diskinn sem kom með vélinni en þá virtist hann líka vera ónýtur! Þá prófaði ég að ræsa tölvuna eðlilega og hún fór vissulega í gang en með allt í steik! Spotlight startar ekki og ekki Finder heldur! Og Time Machine virkar ekki. Ætlaði að reyna að nota það til að fá til baka það sem ég hafði eytt af kerfisskrám, en nei.

Ég hef aldrei nokkurn tímann séð stýrikerfi sem er svo illa farið að maður kemst ekki einu sinni í skráakerfið! Það virkar beisiklí ekkert nema Firefox og til að ræsa hann verð að ræsa iCal fyrst til að fá einhvern menu efst og fara svo undir eplið og velja Mac OS X Software! Get ekki ræst Firefox öðruvísi. Enginn Finder og ekkert Spotlight.

Svo nú er væntanlega næsta skref að fá lánaðan einhvers staðar Tiger eða Leopard ræsidisk og vona að það sé ekki sjálft geisladrifið sem er bilað.

Leggja orð í belg

20.09.2009 21:23 Bachata

Hitti Sunnu í dag til að æfa bachata. Kom í ljós að hún er með nákvæmelga sömu skoðun á salsa og bachata og ég! Vorum að í sirka einn og hálfan tíma og alveg fullt sem ég gat æft mig í. Ógeðslega gaman! Þetta er svo miklu skemtilegra en salsa (og salsa er MJÖG skemmtilegt) að það er ekki fyndið!.

Svo sá ég að serverinn minn var búinn að vera niðri síðan í morgun og ekkert í logunum! Verð að fara að fá mér almennilega vél eða setja allt þetta dót bara upp á makkanum. Vil samt síður opna hann beinlínis fyirr traffík utanfrá fyir utan torrent.

32 dagar þangað til ég fer til London á SASLF. Nú fer ég að telja niður. Verður ábyggilega flottasta danshátíð ársins. Yfir 500 manns frá öllum heiminum, allt frá Íslandi (bara ég) til Hong Kong!

Leggja orð í belg

17.09.2009 20:55 Halló!

Er ég ekki ábyggilega í loftinu núna?! Hafði gleymt NATinu fyrir Tomcat.

Leggja orð í belg

15.09.2009 21:05 Jóga

Prófaði í morgun að gera s.k. 5 Tibetans æfingar eftir að Ole Jakob (danskur dansari sem ég kynntist í sumar) sagði að hann hefði gert þessar æfingar í 8 ár með góðum árangri. Ég get nú varla sagt að ég hafi haft einhverja tröllatrú á þessu en ég er ekki frá því að mér hafi liðið aðeins betur í dag en aðra daga. Kannski bara ímyndun, en ég ætla allavega að gera þetta aftur í fyrramálið. Svo er bara að sjá hvort ég endist í þessu eða hvort ég gefist upp eftir nokkra daga.

Leggja orð í belg

14.09.2009 22:26 Kominn heim

Kominn heim eftir bachatahelgi í Varsjá. Sennilega hefur verið þrefalt fleira fólk þarna en í Gautaborg. Kennt í fjórum sölum með upphækkuðum sviðum en samt var oft alltof mikið af fólki fannst manni.

Þetta var annars alveg geðveikt ef frá er talið þjónustulundin hjá Varsjárbúum sem oft er ekki upp á marga fiska. Marysia (sem býr í Porznan) gat líka staðfest það. Varsjá er oft líkt við Rússland. Ennþá engu líkara en komúnisminn sé enn við lýði. Hún hefur líka sagt mér að enskukennsla sé mjög fátækleg í Póllandi, enda algjör tilviljun ef maður rakst á einhvern sem gat talað eitthvað að ráði.

Þá er það næst Sexy and Sensual festivalið í London í Október! Þá verð ég búinn að fara á fjögur helgarnámskeið erlendis í bachata á árinu!

Leggja orð í belg

11.09.2009 00:37 Pólland

Jæja, þá er komið að því! Fyrsta alþjóðlega bachatafestivalið í Póllandi! Og ég er að fara! Nú mega allar pólsku beibsurnar fara að vara sig!

Leggja orð í belg

09.09.2009 23:21 Tal

Kominn yfir til Tals. Veit ekki alveg hvort ég sé í loftinu enn. Búið að vera hálfgert vesen á tengingunni.

Ég komst reyndar að því hvað var að valda mér mestum vandræðum. Sambandið var að slitna þrisvar sinnum á kvöldi, þurfti að endurræsa ráterinn til að fá netið inn aftur. Í þetta skipti held ég að api hefði fattað hvað var að. Snúran úr músinni lá í lykkju utan um símasnúruna, ráterinn á bakvið lyklaborðsskúffuna, og þegar ég togaði í hana rofnaði sambandið :). Og auðvitað var þetta það síðasta sem mér datt í hug að tékka á!

Leggja orð í belg

23.08.2009 11:51

Sit heima með harðsperrur núna. Hef svo sem oft verið verr haldinn, kálfarnir allavega í lagi.

Ég varð nú hálfsvekktur með þetta hlaup. Þegar ég kom í mark, alveg gersamlega uppgefinn, spurði ég strák sem var rétt á eftir mér á hvaða tíma hann hefði verið því ég hafi ekki séð klukkuna. Hann sagði 42:30 svo ég gerði ráð fyrir að hafa verið á kannski 42:25, sem væri þá bæting um 21 sekúndu. Svo fer ég heim og kíki á netið og sé þá tímann 42:55, sem er 9 sekúndur frá mínu fyrra meti! Kannski ætti maður svo sem að vera sáttur þegar maður hljóp 9 sekúndum hraðar fyrir 10 árum en ég er samt ákveðinn í að bæta þetta.

Kannski maður fari bara í hálft maraþon á næsta ári. Þar ætti ég að eiga auðveldara með að bæta tímann minn því ég á ekki nema 1:55 þar.

Um kvöldið í gær var svo Tepokinn að spila á Þjóðleikhúskjallaranum, hröð og löng lög eins og þeim einum er lagið. Og ég var svo hrikalega uppgefinn að ég fékk far með Ragnheiði heim um hálfþrjú.

23. ágúst, tæpar þrjár vikur í Pólland! Nú fer ég að telja niður dagana!

Leggja orð í belg

19.08.2009 22:01 10 kílómetrar

Skráði mig í dag í 10km í Reykjavíkurmaraþoni!

Í þetta skipti verð ég vonandi betur undirbúinn en oft áður. Fór út í dag og hljóp 4,95km. Þarf sem sagt enn að lengja hringinn um 5 metra til að þetta sé í lagi. Og eins skrýtið og það nú er tókst mér að hlaupa á nákvæmlega sama meðalhraða og þegar ég hljóp síðast, sem var 4,88km, 14,5km/klst.

Náði mér í tónlistina úr Labyrinth í kvöld svo ég geti mögulega endurupplifað það þegar ég hljóp 10km síðast í Reykjavíkurmaraþoni 1999, með ónýtt hné og einn úr hlaupahópnum, sem var að hlaupa hálft maraþon, klappaði á bakið á mér þegar ég átti 2km eftir og sagði mér að drulla mér nú úr sporunum. Hef aldrei fengið aðra eins hvatningu og aldrei lent í því að löngu gleymt lag byrji að hljóma í hausnum á mér. Auðvitað tætti ég áfram og fékk tímann 42:46, enda var hægra hnéð á mér orðið gersamlega dofið og tilfinningalaust.

Nú er ég sem sagt búinn að ná í þetta lag! Ætla að búa til sérstakan lagalista fyrir þetta hlaup, sem næst 40 mínútum að lengd, og þetta lag verður á dagskrá á svipuðum stað. Samkvæmt öllu á ég að geta bætt tíman minn, þó svo ég þori varla að stefna á undir 40. Ef það tekst verð ég svífandi á bleiku skýi það sem eftir er dagsins!

Leggja orð í belg

26.07.2009 21:43 Hmm..

Enn hef ég ekki getað ræst JDeveloper. Eitthvað javavandamál á ferðinni. Og Eclipse vill ekki tala við Tomcatinn minn, svo ég hef ekki getað gert neitt fyrir þessa blessuðu síðu mína.

Kom heim af salsadæminu í Danmörku fyrir sléttri viku. Þetta var mjög gaman en ég leyfi mér að efast um að ég eigi eftir að fara aftur. Í stað þess að vera mjög fjölþjóðlegt eins og svona dansmót eru oftast þá var þetta bara danskt. Ég held bara að ég og Grétar höfum verið þeir einu sem komu erlendis frá. Aðrir útlendingar sem ég talaði við bjuggu í Danmörku. Allar tilkynningar alltaf á dönsku og meira að segja töluð að mestu danska í spænskutímunum sem Grétar fór í.

Annars varð ég mest hissa fyrsta daginn, mánudaginn. Ég sá á planinu að það var alltaf einhver morgunfundur eftir morgunmatinn og á fyrsta fundinum kom einhver frá lýðháskólanum og talaði. Hann byrjaði á að tala mikið um skólann, hvað þetta væri nú góður skóli og allt það, mjög svo óáhugavert fyrir mig. En síðan þegar kom að lokum hjá honum þá sagði hann að nú væri það númer 24 í söngbókinni! Og þá tóku allir fram söngbækur og byrjuðu að syngja saman! Það datt gersamlega af mér andlitið! Þessu hefði ég ekki búist við á salsanámskeiði! Eftirá spurði ég Ole Jakob (einn af krökkunum sem ég hafði hitt í júní í Gautaborg) hvort þetta væri venjan á salsanámskeiðum í Danmörku en þá var þetta venja í lýðháskólum. Þetta salsamót var sem sagt mjög svo litað af því að það var haldið í lýðháskóla!

Hver dagur byrjaði annars á morgunmat milli 7:30 og 8:30. Svo var þessi morgunfundur til kl 9 og morguntíminn í salsa byrjaði 9:10. Kennt var í rúma tvo tíma, oftast með hléi og svo var hádegismatur kl 12:15. Síðan var ekki neitt til kl. 3 og þá annaðhvort svaf ég eða jugglaði. (Tók keilurnar sem betur fer með mér því annars hefði ég haft alltof lítið að gera.) Kl 3 gat maður valið um ólíka dansa á mismunandi getustigum og stóð sá tími til 16:30. Þá var aftur pása til 17:30 þegar kvöldmaturinn var og svo opnaði danstjaldið kl 21:30 og var opið til 1. Ég komst að því á þriðjudeginum að það voru þvílíkir stuðboltar sem bjuggu á hæðinni hjá mér svo maður byrjaði oftast kvöldin þar með því að fá sér í glas og kjafta.

Það verður nú annars að segjast að þessir danir sem maður kynntist þarna voru þvílíkt fínir. Ótrúlega hresst fólk! Held að þeir séu bara upp til hópa félagslyndari en Svíarnir, sem ég þekki mun betur.

En já, þá er bara að fara að hlakka til næsta dansmóts, í lok október í London. Búinn að ganga frá því öllu!

Sexy and sensual latin festival!

Leggja orð í belg

borkur 10.08.2009 15:52
ég myndi skjóta á að JDev er að reyna að nota ónýtt java home. JDev fyrir makkan kemur ekki með pökkuðu JDK þannig að þú gætir hafa skemmt það home sem þú notaðir áður.

11.07.2009 12:57

Jæja, þá er bara komið að þessu! Meiriháttar að fara svona seinni partinn. Geta sofið og vera svo að pakka í rólegheitum um morguninn.

Meiriháttar karlakórsæfing í gær! Ótrúlega gaman að syngja þessi lög aftur eftir öll þessi ár!

Þú góði sterki blakki bíll!
Þú berð mig létt um grund og hæði.
Þú klifur fjöll og klungur ill
og klettasneiðingana þræðir.
Sem flýgur örn í fjallasal
Með fjaðraþyt og vængjabliki
Þú rennur heiðar, háls og dal.
Svo hratt og létt sem tundur ryki.

Er hægir ferð ég fæti styð,
þá fer sem leifturboð á milli.
Og taugar þínar titra við.
Ég tek um sveif og ganginn stilli.
Ég heyri, finn þitt hjarta slá
í heitum, stæltum barmi þínum.
Sem bergmál þínu brjósti frá
sé blandað hjartaslögum mínum.

Frábær texti!


Leggja orð í belg

10.07.2009 01:07 Salsacamp 2009

Nú fer að styttast í ferðina til Danmerkur. Heil vika af dansnámskeiðum! Og vonandi eitthvað bachata líka!

Svo er Silfrið að hittast hjá mér á morgun! Verð að sjá hvort ég geti mögulega tekið þetta upp á minidisc! Sennilega það eina sem hægt er að nota þessa minidiska í nú til dags.

Leggja orð í belg

09.07.2009 01:33 zzzz..

Ég og minn svefn. Einhverra hluta vegna finn ég að ég er ekkert þreyttur þrátt fyrir að hafa sofið minna en sex tíma síðustu nótt. Smá Laphroaig hlýtur að hjálpa.

Leggja orð í belg

Chieko 10.07.2009 00:34
Góða nótt!

29.06.2009 23:23 Einhjólið aftur

Pínu skrýtið að fara á einhjólið eftir tvo bjóra. Sérstaklega þegar maður er ekki betri á því en ég er. Kíkti til afa í kvöld og fékk mér smá bjór með honum. Svo var svo gott veður að ég varð hreinlega að fara eitthvað út og þetta var nú það eina sem mér datt í hug. Það vandist reyndar furðufljótt. Fyrst gekk ekki neitt en svo varð þetta nú allt í lagi. Fann allavega ekki sama smellinn í hausnum á mér þegar ég fór afturábak með höndina á handriðinu.

Vona bara að það komi fleiri svona dagar þannig að ég geti æft mig eitthvað á þessu. Alveg ferlegt hvað allir hinir í sirkusnum eru orðnir góðir en ekki ég!

Leggja orð í belg

28.06.2009 17:46 Einhjólatúr

Tók einhjólið út í dag og prófaði í fyrsta sinn að fara afturábak. Var á litlum fótboltavelli þar sem ég gat stutt mig við grindverkið. Ferlega skrýtið þegar maður byrjaði á þessu. Engu líkara en að það heyrðust smellir í hausnum á mér þegar ég byrjaði að nota einhverjar heilastöðvar sem höfðu legið í dvala allt mitt líf. Þetta minnti pínulítið á þegar ég var að læra fyrst á einhjólið nema að þá var maður að læra að hjóla upp á nýtt, eins og maður gerði sem krakki. En að hjóla afturábak er eitthvað sem ég hef aldrei gert. Svo það var kominn tími til! Verð að fara að æfa mig meira því allir hinir í sirkusnum sem á annað borð geta hjólað eru orðnir miklu betri en ég!

Leggja orð í belg

27.06.2009 16:52 Gísli hlaupkall

Loksins virkaði GPS tækið! Þorði ekki að hlaupa lengra en 4,7km ef það skyldi klikka aftur en ég hef aldrei náð svona góðum tíma!

4,71km
20 mínútur, 24 sekúndur
Meðalhraði: 13,8km/klst!
Mesti púls: 188

Ég er kannski að verða gamall en ég er nokkuð viss um að ég geti náð púlsinum hærra en þetta því ég sprengdi mig ekki alveg á lokasprettinum. Munaði samt mikið um að þegar sirka hálfur km var eftir byrjaði Ruslana að syngja Wild Dance svo þá þýddi ekkert annað en að hlaupa í takt.

Leggja orð í belg

24.06.2009 22:52 Tom Waits!

Aftur líður mér eins og Heroes karakter. Invitation to the Blues og Bad Liver and a Broken heart hljóma nú bara ekkert ósannfærandi hjá mér á píanóinu. Þó svo ég yrði nú ábyggilega beðinn um að spila eitthvað aðeins hressara, eins og oft áður, ef ég spilaði þetta á almannafæri.

Leggja orð í belg

21.06.2009 17:00 Tæknin að stríða mér!!

Þvílíkt svekkelsi! Fór út að hlaupa lengri hring en ég er vanur, sennilega kringum 8km. En þá þurfti garmurinn endilega að klikka! Sagði að ég hefði hlaupið í 5 mínútur og eytt 2 kaloríum. Þar að auki meðalhraða upp á 7,8km/klst sem er rétt rúmur gönguhraði.

Það virðist allt vera að klikka núna. Fyrst EyeTV græjan og svo garmurinn. Kannski er bara USB bössinn á makkanum í steik.

Ég veit ekki einu sinni hvað ég var lengi að hlaupa því ég slökkti á tækinu áður en ég kom heim svo að mjólkursýruskokkið í lokin kæmi ekki inn í meðalhraðann. Þetta er svipað og að taka þátt í hlaupi og komast svo að því þegar þú komst í mark að vegna tæknilegra bilana þá var þinn tími ekki skráður!

Ég já. Ég ætla að reyna að vera duglegur að hlaupa núna. Langar að tálga mig aðeins niður.

Leggja orð í belg

14.06.2009 22:57

Ég missti því miður af byrjuninni á þessu hjá þeim. Var að sjá þetta í annað sinn og hélt að ég hefði tekið það upp í fyrra skiptið. Byrjunin er nefnilega hrikalega kúl.

Hmm...það virðist því miður ekki virka að nota quicktime eða wmp componenta til að útvega straum. Veit ekki alveg hvernig ég geri þetta.


Leggja orð í belg

14.06.2009 17:33

Hér koma nokkrar myndir sem ég tók úti, svona rétt til að skreyta síðuna.

Dansinn á kvöldin í Gautaborg var því sem næst áfengislaus. Verð að segja að ég saknaði aðeins bjórsins. Þess í stað þambaði fólk vatn. Kannski ágætt að gera það öðru hverju.



En það var allavega feikinóg pláss á gólfinu. Hefur ábyggilega verið hátt á annað hundrað manns dansandi þegar mest var.

Svo voru líka margar þrælsætar stelpur þarna. Vona að þér sé sama, Sara, að ég birti myndina af þér hér.



Samt verð ég eiginlega að segja að Finnland hafi átt vinninginn. Þar var alltaf stutt í bjórinn enda er fátt betra þegar maður er búinn að dansa mikið og orðinn bullsveittur að fá sér einn kaldan!

Aðalpartýið í Finnlandi fór fram á eyju rétt fyrir utan Tampere, hálftíma siglingu í burtu. Geðveikt flott!



Leggja orð í belg

13.06.2009 18:24 Kominn heim

Jæja, þá er maður kominn heim. Þessi ferð slær eiginlega allar fyrri dansferðir út. Bachatango er svalasti dans sem ég veit um og tónlistin algjört eyrnakonfekt! Við vorum vinsamlegast beðin um að setja engin myndbönd á youtube, facebook eða Porhalf (en þangað hefur fólk víst sent myndbönd af fólki dansandi bachata) en þar sem svo fáir lesa síðuna mína þá held ég að það sé í góðu lagi að setja eitthvað hér. Mun ganga í það á morgun.

Leggja orð í belg

05.06.2009 07:28 Í Finnlandi

Þá er maður staddur í FInnlandi. Bachatahátíðin í Gautaborg um síðustu helgi var meiriháttar skemmtileg! Þó svo ég get varla sagt að mér hafi farið svo rosalega fram í bachata en ég fékk allavega kynningu á bachata tango og zouk. Zouk er þvílíkt kúl dans, tónlistin mjög svipuð reggeton. Svo nú getur maður dansað eitthvað flott við reggeton lögin.

Svo byrjar bachatahelgin í Helsinki/Tampere í dag. Og ef marka má prógrammið hjá þeim, þá er þetta miklu viðameira. Búið að skipuleggja einhverja bátsferð á laugardagskvöldinu og hitt og þetta. Hér virðist áherslan vera eingöngu á bachata og svo aðeins bachata tango (eða bachatango). Sem er bara flott.

Svo daginn sem ég kem heim er Zeno með útlendingapartý á Valhúsabrautinni! Ætla að vona að ég verði ekki alveg útpískaður þá svo ég geti mætt.

Leggja orð í belg

12.05.2009 22:00 Einhjólahandbolti

Fór í fyrsta sinn á ævinni í einhjólahandbolta í kvöld og ég er bara alveg búinn! Ég hef ekki stigið á einhjólið í marga mánuði og djöfull var ég lélegur! Helvíti erfitt þegar maður getur ekki lullað á sama stað, hvað þá hægt mikið á sér eða stoppað. Ég var orðinn frekar pirraður á tímabili enda voru spilaðir tveir leikir, sá fyrri upp á 20 og sá síðari upp á 10. En mér fannst ég samt vera aðeins betri í lokin heldur en í byrjun. Þetta er pottþétt rosalega góð æfing. En því miður var þetta síðasti leikurinn fyrir sumarið því íþróttahús Tækniskólans er lokað (!!!) yfir sumarið.

Og ég get svarið það. Það er ekkert í þessum heimi sem jafnast á við bjór eftir svona keyrslu!!! Bjór, ég elska þig!!

Leggja orð í belg

03.05.2009 21:13 Tom Waits

Ég er bara ansi klár! Nú tókst mér að pikka upp nokkurn veginn "I Can't Wait to Get Off Work" af Small Change á píanó. Svei mér þá ef það hljómar ekki bara nákvæmlega eins! Mér líður næstum eins og Peter í Heroes :), nýbúinn að soga til sín nýjan hæfileika. Þetta lag er langt frá því að vera flókið að spila. Gaman að sjá hversu mörg af lögunum hans ég get pikkað upp!

Leggja orð í belg

01.05.2009 23:21 Laphroaig

Var að fá mánaðarlega póstinn frá John Campbell þar sem hann minntist á vídeóbloggið sitt. Hef aldrei skoðað það áður. Get ekki sagt að ég hafi skilið skoskuna hans fullkomlega en ferlega er nú svekkjandi að eiga ekkert Laphroaig þegar maður er að horfa á hann smakka nýju 18 ára gerðina! Einhvern tímann áður en ég dey ætla ég í pílagrímsferð til Islay. Og þú, Börkur, ætlar að koma með mér! Og jafnvel Palli líka.

Fór í gær á sirkusæfingu og svo bein á Ólíver á salsakvöld. Ég sagði Lee og Öldu að endilega kíkja þó ég hafi ekki sérstaklega búist við þeim. En stuttu eftir að ég kom birtist Lee! Virkilega gaman að sjá hann. Nú sá hann mig sem sagt dansa í fyrsta sinn og þó ég segi sjálfur frá þá fannst honum ég bara hrikalega flottur! Nú vill hann endilega fá mig í eitthvað dansdæmi í sirkusnum og ég er bara virkilega til í það!


Leggja orð í belg

borkur 19.05.2009 14:24
ég mæti sko pottþétt með þér :)

26.04.2009 14:47 Tom Waits

Fór í gær í Perluna á þennan árlega diskamarkað. Ég bjóst nú ekki við að kaupa neitt en labbaði út með 8 diska. Þar af sex með Tom Waits. Þessi gaur er algjör snillingur! Búinn að liggja í þesu síðan í gær, búinn að lesa um hann á Wikipediu og horfa á fullt á youtube.

Leggja orð í belg

borkur 26.04.2009 19:53
já Waits er góður. Búinn að hlusta á nýjasta diskinn, þrefaldur snillingur á ferð þar!

btw, ætlaru að reyna að kíkja á mig í sumar?

Gísli 01.05.2009 23:23
Annaðhvort það eða við förum í einhverja ferð saman. Hvernig væri að heimsækja Laphroaigeyjar?

24.04.2009 23:21 Prentarinn minn virkar!!

Prentarinn minn, Canon S300 bleksprautuprentari, hafði ekki virkað í sennilega tvö ár en í gær tókst mér að laga hann! Ég tengdi hann við makkann fyrir mánuði síðan og bjóst við að þurfa að ná í einhverja drævera en makkinn vissi alveg hvernig prentari þetta var, svo það var lítið mál. Hins vegar prentaði hann bara auð blöð, eða allavega engan svartan lit. Þó svo hann væri með glænýtt blekhylki.

Svo ég gúglaði "Canon s300 won't print black" og fann síðu þar sem fullt af fólki hafði lent í því sama og var að segja sínar reynslusögur. Einhverjir mæltu með að taka prenthausinn úr og skola hann með alkóhóli en aðrir bara að skola hann með vatni. Svo ég kippti honum úr og reyndi fyrst að skola hann með sjóðandi vatni. Vatnið varð strax kolsvart og eftir nokkrar skolanir fór hann að prenta örlítið en síðan fór allt í sama farið. Svo ég tók þá prenthausinn úr aftur, setti hann á kaf í sjóðandi vatn í plastbox og lokaði boxinu. Eftir tvo tíma tók ég hann út og þurrkaði með eldhúsrúllu og voila! Hann bara virkaði, blessaður prentarinn!

Leggja orð í belg

05.04.2009 14:35 Salsasumarbústaðaferð lokið

Kominn heim úr ferðinni. Þvílíkt gaman! Ég hefði ekki trúað því að þetta fólk væri svona miklir djammarar. Þau jafnast eiginlega alveg á við Háskólakórinn, sem þarf ekki annað en að komast aðeins út fyrir Reyjavík til að vera dotinn í það.

Allavega, vonandi fyrsta ferð af mörgum. Hrikalega skemtileg námskeið. Þó svo mitt blessaða hægra hné sé enn aðeins að kvarta eftir breaktímann hjá Grétari.

Leggja orð í belg

31.03.2009 23:40 Þetta er búið...

Jæja, þá er væntanlega mínum ferli í Háskólakórnum lokið. Vortónleikar í kvöld og ég sé ekki fram á að geta mætt meir. Komin of mikil pressa í vinnunni til að ég geti verið að hætta svona snemma tvisvar í viku. Erfitt þegar maður er að uppfæra kerfi sem eru í notkun yfir daginn.

En já, þetta var gaman en nú er virkilega kominn tími á mig. Sirkusinn og salsað mun taka við! Svo ég tali nú ekki um allt bachatað sem bíður mín!

Leggja orð í belg

borkur 07.04.2009 20:57
Heyrt þennan áður :)

Gísli 15.04.2009 22:51
Neibb, nú er ég búinn að brenna allar brýr að baki mér.

27.03.2009 00:53 Grace Jones

Grace Jones er ansi góð. Mun aldrei gleyma þegar ég dansaði bachata í Brussel við þetta lag! Allt í einu kominn 20 ár aftur í tímann! "Strange....I've seen that face before..."

Leggja orð í belg

14.03.2009 00:58 Góður dagur!

Föstudagurinn 13. mars. Ef ég á að vera hjátrúarfullur þá verður þetta bara happadagur hjá mér hér eftir. Náði því sem ég hélt að væri ómögulegt á svona stuttum tíma, að uppfæra þjónustuvef Askar Capital upp í Oracle 11 og tókst að sannfæra pabba minn um að það borgaði sig að greiða verðtryggð lán upp núna. Bæði var ekki átakalaust en það tókst!

Og í bónus þá sagðist pabbi ætla að gefa mér viskýflösku ef þetta reyndist rétt hjá mér með Íbúðalánasjóð. Svo þá er ég komin með eina flösku af Laphroaig í veðmáli sem ég veit að ég vinn!

Jess!!! Svona ættu allir dagar að vera!

Leggja orð í belg

borkur 15.03.2009 21:40
Skál fyrir því. vona að þú hafir tekið fram að þetta ætti að vera 27 ára Laphroaig, svona eins ég sá í Heathrow á fimmtudaginn

http://www.whiskygrotto.com/2007/11/27/laphroaig-27-a-special-friends-of-laphroaig-single-malt-whisky/

Gísli 23.03.2009 23:44
Ég tók reyndar fram að þetta ætti að vera Laphroaig en í ljósi þess að þetta var veðmál sem ég vissi í upphafi að ég mundi vinna þá sætti ég mig við eina Macallan 12 ára sem hann hafði fengið í afmælisgjöf. Ég hef aldrei smakkað þetta áður og þetta er bara nokkuð gott, þó svo það komist nú ekki með tærnar þar sem 10 ára Laphroaig hefur hælana. Hvað þá eldra. Verð að viðurkenna það.

11.03.2009 01:08

Í kvöld kom Egill Gunnars í heimsókn til mín. Ég vildi í fyrsta lagi ræða við hann um Silfur Egils og í öðru lagi reyn að fá eins miklar upplýsingar upp úr honum um sögu Háskólakórsins og ég gæti. Það kom í ljós að hann mundi alveg ótrúlega mikið frá því fyrir 1994, eða áður en ég kom til sögunnar. Hann mundi eftir vel flestum verkum sem kórin hafði flutt auk höfunda þeirra. Nokkuð sem ég man mjög illa frá mínum kórárum.

Mér tókst allavega að skrifa aleg fullt upp úr þessu og vonandi kemur þetta fljótt fyrir sjónir almennings. Hvort sem það verður á okkar eigin síðu eða Wikipediu.

Svo tókst mér að ná í á torrent allt sem Frankie goes to Hollywood gáfu út, þar með talið 12 tomman af Rage Hard, besta 12 tomma sem ég hef heyrt! Er alveg í sæluvímu hér núna hlustandi á hana. Þvílík nostalgía!!

Nema að þessi útgáfa feidar út!!! Þannig var það ekki á gamla vinylnum!! :(.

Leggja orð í belg

09.03.2009 01:12 !!!

JEI!! Serverinn minn er á lífi Hélt hann hefði ekki lifað af minnisstækkunina upp í 3GB.

Leggja orð í belg

19.02.2009 20:16 Nefið

Lét taka sauminn úr nefinu á mér í dag. Sem var reyndar ekkert einfalt því að hjúkkan sem gerði það sagði að ég væri með svo mikið "hreistur á nebbanum". Fékk annan plástur svona rétt á meðan þetta er að lokast.

Glóðaraugun eru enn á sínum stað en hafa samt dofnað aðeins, sem betur fer.

Leggja orð í belg

15.02.2009 00:45 Myndirnar mínar

Þá eru myndirnar mínar loksins orðnar aðgengilegar. Auðvitað var það sem var að alveg fáránlega einfalt. Nú get ég loksins haldið áfram með að flytja allt draslið yfir á nýju vélina og henda þeirri gömlu.

Laugardagskvöld og Vetrarhátíð í gangi. Salsa á Sólon. Og ég er heima. Ekkert mikið fyrir að láta sjá mig niðri í bæ með tvö glóðaraugu...

Leggja orð í belg

13.02.2009 02:52 Heimska!!

Jæja, hvernig í ósköpunum á ég að orða þetta. Mér tókst að slasa mig á svo heimskulegan hátt að ég bara næ því ekki. Er nýkominn af slysó núna!

Ég kom heim af sirkusæfingu rúmlega ellefu og vann aðeins í smá forritunarprójekti og um hálfeitt ætlaði ég svona að fara að fara að sofa. Og svo ég sé alveg hreinskilinn þá hafði ég fengið mér tvo heimalagaða eftir sirkusæfingu, því ég er alltaf svo high eftir þessar æfingar. En allavega fékk ég þá snilldarhugmynd að prófa magahjólið svona einu sinni, sjá hvað ég kæmist núna langt niður, á tánum að sjálfsögðu, ekki á hnjánum. Núna veit ég sem sagt að það er ástæða fyrir því að menn gera þessa æfingu almennt ekki á tánum. Ég hef svo sem gert hana oft áður en núna ætlaði ég virkilega að sjá hvað ég kæmist langt niður. Og ég byrjaði, fór ansi lant, en, síðan þegar ég ætlaði ða reisa mig við þá var það auðvitað ansi erfitt, svo ég hjálpaði til með höndunum einum of mikið, dró hendurnar að mér í stað þess að nota bara magann. Og hvað haldiði að hafi gerst? Ansi erfitt að lýsa þessu, en allavega, hendurnar fóru undir mig aðeins of langt, hjólið skaust inn undir mig og ég lenti beint á andlitið á gólfið! Sjokk! Fullt af blóði! Ég hljóp fram á bað og leit í spegil, Stór skurður á ofanverðu nefinu. Húðin búin að flettast upp eins og rós. AUðvitað blóðnasir í ofanálag. Það fyrsta sem mér datt í hug var hvort ég ætti ekki bara að drífa mig upp á slysó en bæði var ég á leiðinni upp í rúm og svo fannst mér þetta ekki vera það mikið að það gæti ekki beðið til morguns. Svo ég skolaði þetta og þerraði en þegar ekki var hætt að blæða eftir hálftíma ákvað ég, sem betur fer, að taka taxa upp á slysó. Betra að gera það strax heldur en að bíða með það. Sem betur fer var enginn staddur þar svo að ég beið í sirka eina mínútu áður en ég var kallaður inn. Það tók varla meira en 10 mínútur að sauma þetta saman en þau voru sammála um það að ég hefði alls ekki átt að bíða til morguns.

Og á morgun hef ég úr þremur partýum að velja plús fredagsbar í vinnunni. Og ég verð að vera kominn með einhverja góða lygasögu þegar allir fara að spyrja mig. Hmmm...Yngvi skallaði mig? Hljómar ágætlega.

Leggja orð í belg

26.01.2009 15:03 Nýr þjónn

Það ætlar að ganga eitthvað treglega að koma þessu dóti öllu upp á nýja servernum mínum. Myndirnar úti ennþá :(.

Leggja orð í belg

borkur 03.02.2009 00:09
hvað hentiskeði?

Gísli 05.02.2009 11:15
Það skeði svo sem ekkert. Er bara að fara að henda gamla servernum, 700 megariða vél með ónýtt minni. Fékk gamla vél í vinnunni í staðinn sem er mikið betri.

13.01.2009 17:45 Heima veikur

Jæja, þá er maður kominn heim frá Stokkhólmi. Fátt leiðinlegra en að veikjast í stuttu fríi!! Ég var orðinn eitthvað skrýtinn á föstudaginn og svo var ég greinilega með hita á laugardagsmorguninn. Svaf auk þess illa því ég vaknaði alltaf á nóttunni við það að hálsinn og nefið voru full af slími.

En samt sem áður var þetta frábær ferð og þessi eini bachata tími sem við fórum í var meiriháttar! Sascha sagði mér líka að bachata væri að verða mjög vinsælt í Svíþjóð og að það ætti að halda eitthvað bachata festival í sumar þar. Djöfull langar mig að fara!

Leggja orð í belg

04.01.2009 21:50 Stórasti sirkus Íslands búinn að ljúka sér af

Þá er síðasta sýningin okkar búin. Og pakkfullt hús á hverri einustu sýningu! Alveg ótrúlega gaman að hafa séð þetta gerast. Sjálfur var ég nú ekki með stórt hlutverk og var alltaf að læra betur hvernig ég gæti bætt karakterinn. En ég lærði allavega slatta á þessu. Rosalega gaman að sjá viðbrögð sumra barnanna þegar ég bauðst til að gera eitthvað trikk fyrir þá :).

Einn pínulítill strákur hristi bara hausinn þegar ég spurði hvort ég ætti að gera trikk fyrir hann. Svo kom Salóme á eftir með kassann til að selja honum drasl fyrir krónu eða koss á kinnina og sá litli var sko ekki á því að fara að kyssa hana á kinnina. Hristi bara hausinn.

Svo gerði ég sjóræningjann, með staurfót, páfagauk á öxlinni og eina keilu sem sjónauka, fyrir einhvern og þá kom til mín einn strákur, kannski sjö ára, og spurði hvort við værum að selja svona og benti á keilurnar. Ég sagði nei, því miður, og þá spurði hann hvort hann mætti nokkuð prófa. Það var auðvitað sjálfsagt mál nema að í staðinn fyrir að kasta henni upp í loftið þá bar hann hana upp að auganu eins og ég hafði gert þegar ég þóttist vera með sjónauka. Svo sveri hann henni við og prófaði að kíkja í hinn endann, rétti mér hana svo aftur og sagði að hún virkaði ekki. Ég vissi hreinlega ekki hvað ég átti að segja því honum var alveg alvara :). Hann virtist hafa haldið að ég hefði breytt keilunni í sjónauka sem virkaði! Ég sagði eitthvað á þá leið að það vantaði víst gatið í gegn en tókst ekki að láta það hljóma fyndið því ég vildi heldur ekki gera grín að stráknum. En allavega, góð minning!

Leggja orð í belg

borkur 03.02.2009 00:15
hahahahahaha.
andskotinn að ég hafi aulast til að missa af miðum á þetta!!!

Kaupi bara tvo miða næst!

Gísli 05.02.2009 11:18
Já, betra að hafa tvo miða í hendi en að einn...hmm..sé úti í skógi. Ég mun annars nálgast upptöku af sýningunni svo að Þú munt geta séð hvernig hún var.

03.01.2009 00:00 Sirkusinn

Hey! Uppselt á allar sýningarnar svo að í kvöld var ákveðið að vera með aukasýningu! Vægast sagt frábærar viðtökur! Rosalega gaman að vera hluti af þessu, þó svo að mitt hlutverk sé nú bara pínulítið af því það var svo mikið að gera hjá mér í kórnum þegar þau voru að æfa sem mest.

Leggja orð í belg

01.01.2009 21:04 Nýtt ár

Voðalega er maður nú eitthvað þreyttur núna. Búinn að fara seint að sofa og vakna seint alltof lengi og í ofanálag búinn að drekka fullt af bjór og víni. Var hjá Skúla í dag og varð gjaldþrota á tveimur tímum í matadori.

Annars tók ég nú eiginlega mín áramót út þann 30. þegar ég fór með Berki á Sjávarkjallarann. Ég hef hreinlega aldrei farið á jafnflottan stað á Íslandi, enda kostaði þetta sitt. En maður fer líka ekki á svona stað til að spara peninga. Gaman að gera þetta einu sinni á ári. Þetta var sannkallað matarfyllirí, þvílíkt margar tegundir af ótrúlega góðum mat!

Svo að í gær var ég eiginlega frekar framlágur. Hafði vakað til sirka fjögur með Berki hlustandi á Pink Floyd og drekkandi bjór. Svo að þegar ég skilaði mér heim eftir áramótagleðina hjá mömmu og pabba var ég virkilega búinn á því. Gat samt ekki annað en klárað að horfa á Heroes þáttinn sem ég var hálfnaður með en eftir það hrundi ég líka niður í rúmið.

Svo á morgun eru sirkussýningarnar að byrja og ég fékk smáhlutverk sem einhvers konar jóker frammi í anddyri þegar fólkið kemur. Veit ekki enn alveg hvernig karakter ég á að vera en það kemur vonandi í ljós.

Svo minnir mig endilega að það hafi átt að vera salsa hjá Freydísi í kvöld en ég finn bara ómögulega upplýsinga rum það. Enda veit ég ekki hvort ég nenni eftir að vera nýkominn heim úr Hafnarfirðinum.

Leggja orð í belg

07.12.2008 22:13 Jólin að koma

Jæja, þá er ég búinn að setja mín venjulegu jólaljós í gluggakistuna. Hlustandi á jólalög um leið svona til þess að reyna að koma mér í jólagírinn. Snjórinn úti hjálpar reyndar aðeins til.

Svo ætlaði ég nú loksins að drífa í því að setja upp Ubuntu á gömlu vinnuvélinni minni og sá að á diskinum var boðið upp á minnisprófun. Gat nú varla farið að sleppa því fyrst þetta var þarna fyrir framan nefið á mér. Alveg ótrúlegt hvað mikið af minni reynist vera gallað. Þetta er nú búið að keyra í klukkutíma og núna rétt áðan sá ég að það höfðu fundist gallar í þessum eina minniskubbi sem er í vélinni. Ég á sem betur fer tvo aðra sem ég get prófað en ætli þeir séu ekki bara gallaðir líka. Allavega getur þetta varla verið verra en sú sem er minn núverandi server, búin að frjósa reglulega undanfarið því minnið er gallað í henni.

Svo ákvað ég um daginn að laga myndasíðuna mína þannig að feidið væri ekki svona sló þegar maður fer á næstu mynd. Núna virkar þetta voðalega vel hér heima þar sem ég er beintengdur við vélina en þegar ég prófaði þetta úr vinnunni þá virkar þetta bara alls ekki :(. Rétt eins og feidið sé svo snöggt að hún sýnir bara sömu myndina aftur. Verð víst að laga þetta. Þó svo allir mínir vinir séu sennilega hættir að skoða þessar myndir mínar því allur heimurinn setur myndirnar sínar á facebook núorðið. Ég er sá eini sem enn streitist á móti.

Leggja orð í belg

26.11.2008 02:26 Tónleikarnir búnir!!!

Messías eftir Händel, ekki létt verk fyrir kór að æfa upp á tveimur og hálfum mánuði. Og miðað við þan tíma heppnaðist þetta mjög vel. En mikið er rosalega gott að þetta skuli vera búið!! Eftir alla þá vinnu sem við í stjórn kórsins höfum lagt í þetta. Væntanlega í síðasta skiptið sem ég kem að skipulagningu svona stórra tónleika.

En við sönnuðum það enn og aftur að við erum hrikalega góður kór!

Leggja orð í belg

15.11.2008 22:05 Kominn aftur á makkann :-p

Jæja, eftir tvær vikur af Windows notkun heima er ég loksins kominn aftur á makkann minn! Skjákortið var bilað en það tók þá tvær vikur að taka vélina fyrir. Greinilega ansi mikið að gera hjá þeim. Og þegar til kom þurfti ekki að gera neitt annað enað skipta um skjákort.

Munurinn á PC vélinni minni og makkanum er sennilega eins og munurinn á mótorhjóli og sportbíl. Allt á makkanum er svo margfalt þægilegra! Það heyrist ekert í henni meðan PC vélin er hrikalega hávær. Svarta Dell lyklaborðið hefur mátt muna sinn fífil fegri, nokkrum sinnum helst niður a það svo að þ takkinn festist stundum inni. Músin er þung og leiðinleg. Meðan lyklaborðið á makkanum er eitt það besta sem ég hef prófað og músin meiriháttar. En það besta er að vera laus við þennan helvítis hávaða í pésanum!

Allir að fá sér makka! Hann rúlar!!!

Leggja orð í belg

30.10.2008 23:14 Hálsmeiðsli

Var að koma af sirkusæfingu með sennilega verstu meiðslin til þessa. Var að fara aftur á bak yfir bakið á Nick þannig að hann mundi henda mér yfir svo ég færi í rólegt heljarstökk afturábak. Nema það að þetta varð ekkert mjög rólegt. Í staðinn fyrir að lenda á fótunum lenti ég úr talsverðri hæð beint á neðri hluta baksins og í stað þess að finna til þar fór höggið beint upp í háls! Frekar skerí. En ég lamaðist allavega ekki Og Lee segir að þetta sé svipað og að skera sig í fingurinn. Þetta lagast. En ég er voðalega hræddur um að ég eigi eftir að verða eins og spýta þegar ég vakna í fyrramálið. Ætla allavega að drekka nógu mikinn bjór til að ég sofi sæmilega.

Leggja orð í belg

borkur 03.11.2008 09:48
úff, ekki hljómar þetta vel. minnir mig á þegar við fórum eitt sinn í trampólín í gamla salnum í HÍ. Þér tókst þá líka að lenda öfugt og togna frekar illa í hálsinum.

"Það kostar háls að vera trúður"

Gísli 19.11.2008 22:42
Það var nú ekki neitt. Ég jafnaði mig nú strax á því. Samt alltaf óþægilegt að lenda á hálsinum þó það sé á trampólíni. En samt verra að lenda úr meters hæð á ofanverðum rassinum og fá höggið upp í háls. Samt eru nú eflaust margir sem eru verr haldnir núna en ég. Fór í 3. sinn til Katrínu hnykkjara í dag. Hún lagaði mig síðast þegar ég var með bakvandamál fyrir fjórum árum svo hún á ábyggilega eftir að gera eitthvað fyrir mig núna.

27.10.2008 23:10 Týndir lyklar

Á laugardaginn var hið árlega grímupartý kórsins. Og þar sem ég hafði fengið ábendingu um að vera Danny Zuko úr Grease þá fékk ég lánaðan gamlan og sjúskaðan leðurjakka hjá pabba sem ég límdi T-birds lógóið aftan á með málningarteipi.

Þegar ég hafði klárað að gera jakkann í stand dreif ég mig í að tæma vasana á hinum jakkanum og setja í þennan, svo ég hefði nú kort og lykla og svoleiðis. Svo setti ég gel í hárið og dreif í að hringja í leigubíl því ég var orðinn frekar seinn. En þegar ég var kominn í dyragættina og þreifaði eftir lyklunum í vasanum þá voru þeir ekki þar! Svo ég leitaði í öllum vösum, svo í vösunum á jakkanum sem ég hafði verið í áður, síðan bókstaflega út um alla íbúð og varð alltaf pirraðri og pirraðri. Leigubíllinn kom en fór aftur þegar ég skilaði mér ekki. Að lokum gafst ég upp, gróf upp varalykla og hringdi á annan bíl.

Í gær var ég svo af og til að leita að lyklunum en án árangurs. Næsta skref væri þá að fara í allsherjar tiltekt, snúa öllu við.

Núna áðan fór ég svo að leita aftur. Leðurjakkinn sem ég hafði verið í er mjög þykkur og ég hélt að það hlyti að vera einhver leyndur vasi sem ég hafði stungið lyklunum í, svona til að þeir týndust nú ábyggilega ekki. Hægri vasinn var rifinn að innan svo ég prófaði að fara með höndina inn undir fóðrið en enn engir lyklar. Ég þreifaði þá neðst á jakkanum allan hringinn og alveg að hinum vasanum. Þar fann ég allt í einu eitthvað hart! Fannst þetta samt ekki vera lyklarnir mínir enda er lyklakippan ítið samurai sverð sem ég keypti úti í Japan. Allavega, höndin aftur inn undir fóðrið hægra megin og alveg á kaf að vasanum vinstra megin. Og jú, þetta voru lyklar en ekki mín kippa. En jú, undir fyrstu kippunni var önnur, og þar fann ég loksins fyrir samurai sverðinu.

Svo ég dreg höndina út með báðar lyklakippurnar. Og hvað haldiði! Hin kippan var með bókstafnum G á. Þetta var sem sagt kippa sem ég hef týnt fyrir líklega 20 árum síðan, lykill heima hjá mömmu og pabba, lítill hjólalykill og svo lykillinn að bílskúrshurðinni þar sem ég var með trommusettið mitt :).

Þessi jakki étur lykla!!

Leggja orð í belg

21.10.2008 23:14 Mjaðmaverkur

Jæja, nú er engu líkara en að ég sé að fá verk eftir salsadans í fyrsta skipti síðan ég byrjaði á þessu, og það eru nú komin sex ár síðan ef maður telur með blábyrjunina í Svíþjóð 2002. Var bara fínn þegar ég vaknaði, fór í vinnuna og sat þar við í klukkutíma áður en ég fór og fékk mér kaffi. Og þá fann ég einhvern undarlegan verk í hægri mjöðminni, eins og ég hefði setið eitthvað vitlaust. Bjóst við að þetta mundi nú fara fljótlega en þetta ágerðist bara þegar leið á daginn. Fór heim eitthvað um hálffimm því ég var hreinlega orðinn viðþolslaus, gat hvorki setið né staðið.

Og núna, eftir tvær panodil og eina voltarin rapid finn ég enn fyrir þessu en þetta er þó örlítið á undanhaldi. Veit ekki hvað í ósköpunum ég hef gert svona vitlaust. Ég fékk aldrei í mjöðmina úti á Kúbu í janúar og það var mesta danstörn sem ég hef á ævinni tekið.

En jæja, vona svo sannarlega að ég verði kominn í lag á morgun.

Leggja orð í belg

09.10.2008 23:52 Everybody hurts

Verið að spila Everybody hurts á Bylgjunni. Margir vinir mínir erlendis búnir að senda mér sms eða tölvupóst til að sjá hvernig ég hefði það. Og jú, ég hef tapað slatta en samt ekki jafnmiklu og margir aðrir.

Ég er allavega feginn að ég fjárfesti í minnisstækkuninni fyrir makkann. Núna er hann með 5GB í vinnsluminni í stað eins GB! Hef aldrei unnið á tölvu með svo miklu minni! Reyndar bara einn leiðinlegt við þetta. Ég finn engan mun!!

Bara eitt sem dugir á svona tímum. Skemmta sér, detta í það, eyða þeim peningum sem maður getur eytt!

Leggja orð í belg

05.10.2008 00:42 Berjavínið

Voðalega hef ég haft eitthvað lítið að srkfia um undanfarið. Virðist ekki hafa verið að gera neitt merkilegt.

Var með fimm japani í mat í kvöld, Chieko og fjóra vini hennar frá Gamla garði. Var bara mjög fínt og svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir einn hlut. Þarna var ein tvítug stelpa sem hafði búið í Kanada þegar hún var lítil en talar ensku ennþá næstum eins og innfæddur kanadamaður. Við vorum þrjú eitthvað að kjafta saman um bíómyndir við DVD hilluna mína þegar allt í einu kom þögn svo ég segist ætla að setja á einhverja meiri tónlist. Ég labba að makkanum og set stækunina á. Ég veit ekki hvort hún sá þegar ég setti hana á eða hvort hún sá bara á skjáinn þegar allt var orðið stórt. Ég var að skoða lagalistana mína í iTunes og var að hugsa að kannski mundi hún halda að þetta væri eitthvað svipað og Front Row, að allt væri bara svona stórt á skjánum. En þegar ég hafði rétt klárað að hugsa þessa hugsun þá spyr hún hvort ég eigi í vandræðum með sjónina. Ég var virkilega hissa, sagði að hún væri sú fyrsta sem spyrði mig að þessu svona strax og útskýrði mitt sjónvandamál fyrir henni. Satt að segja dáðist ég að henni fyrir að spyrja mig að þessu. Næstum allir aðrir sem hafa séð á skjáinn hjá mér í fyrsta sinn hafa litið undan eða bara ekki sagt neitt, hef ekki hugmynd um hvað þetta fólk var að hugsa á því augnabliki. En þessi stelpa spurði bara beint út! Svona ættu allir að vera!

Leggja orð í belg

19.09.2008 00:43 Rigning úti

Hitti Sofiu Tingsell í kvöld og endaði á að taka hana í tveggja tíma salsa og bachata tíma! Hún var búin að segja mér að hún kynni ekkert að dansa en ég hef sjaldan séð stelpu vera að taka sín fyrstu salsaspor á ævinni og hafa jafngaman að því. Ég meira að segja missti mig hálfpartinn og fór að kenna henni fáránlega flókna hluti en hún hafði gaman að þessu öllu.

Mér finnst alveg ferlega gaman að kenna! Sama hvað það er.

Og nú styttist í Nýliðapartýið hjá kórnum. Verður pottþétt meiriháttar gaman!

Leggja orð í belg

28.08.2008 23:41 !!

Nú féll sprengja!

Leggja orð í belg

27.08.2008 23:36 Berjavín 2008

Lagði í berjavín í gær, sem svo sem væri ekki í frásögur færandi nema að ég held að allt sem gat farið úrskeiðis hafi farið úrskeiðis. Lögmál Murphys fullsannað!

Byrjaði á því að ég fór með Chieko á sunnudaginn og tíndi sólber í garðinum hjá Birnu og Einari í tæpan klukkutíma. Ég hélt í einfeldni minni að við hefðum tínt svona tæplega 3 kíló en það var nú fullbjartsýnt af mér. Þegar ég om heim og vigtaði allt saman kom í ljós að þetta var ekki nema 836g í heildina! Við tíndum reyndar í sitthvora fötuna og það blekkti svolítið býst ég við.

Svo ég setti berin inn í ísskáp og fór að spá í hvað ég gæti gert. Næsta dag var ég að reyna að gúgla eftir berjalöndum eða einhverju sem gæti hjálpað mér. Fólk að auglýsa eftir einhverjum til að tína ber í garðinum sínum. En ég fann ekki neitt.

Ég hringdi síðan í Birnu og sagði henni hvað við höfðum tínt lítið og hún lofaði að hreinsa runnann af öllum berjum. Hún kom svo til mín með það sem hún hafði getað tínt af sólberjum plús lítinn poka af bláberjum og annan af krækiberjum sem foreldrar Einars höfðu tínt. Ég hafði þá þegar farið í Vínberið á Laugavegnum og keypt 5kg af krækiberjum og komið við í Ámunni til að kaupa efnin (ger, gernæring, gerstopp, felliefni og fleira góðgæti) svo nú var ekkert því til fyrirstöðu að byrja á þessu.

Svo þetta þriðjudagskvöld, í gærkvöld sem sagt, byrjaði ég á þessari lögun. Ég byrjaði á að kreista pokann af bláberjunum. Það var nú það lítið magn að það var fljótgert. Síðan tók ég sólberin sem Birna hafði tínt, sem var álíka mikið magn, kreisti þau, og því næst krækiberin sem höfðu komið frá foreldrum hans Einars. Þó svo krækiberin séu lítil og allt annað en bragðgóð þá verður að viðurkennast að það er mun þægilegra að kreista þau. Maður sprengir berin, kreistir safann út og þá er bara hratið eftir. Þegar maður kreistir bláber og sólber er eins og maður sé að kreista blóðugt kjötstykki. Safinn er frekar þykkur og það virðist alltaf vera fullt eftir þegar maður er búinn að kreista úr sér líftóruna!

En já, síðan tók ég til við 5 kílóa pokann af krækiberjum. Tók hann í nokkrum skömmtum en á endanum var allur safinn kominn úr þeim og ég orðinn helaumur í höndunum.

Þá var komið að því að vigta kornsykurinn. Ég hafði áður vigtað berin og komist að því að batteríin í stafrænu vigtinni minni voru búin. Svo ég skipti um þau og var frekar svekktur með hvað þessi ber vógu lítið. En þegar kom að því að vigta sykurinn þá hreinlega trúði ég ekki að vigtin væri að segja satt. Svo ég náði í eina juggling keiluna mína, sem ég vissi að væri kringum 190 grömm. Og nú vó hún bara 80 grömm! Sem sagt, vigtin biluð!

Ég hafði ætlað að mæla nákvæmlega 2,1kg af kornsykri en núna þurfti ég bara að styðjast við sykurflotvogina. Svo ég fór nokkrar frerðir milli eldhússins og svefnherbergisins með sykur og mældi alltaf eðlisþyngdina á milli. Á endanum tókst mér að setja um 300 grömmum of mikið svo að í staðinn fyrir að þyngdin væri 1090 varð hún 1104. Sem þýðir að ef vínið gerjast niður í 1004 þá verður það 100/7,5 = 13,3%. Sem reyndar væri ekki svo slæmt.

En allavega, ég var bara feginn að vera búinn að þessu, setti gerið og gernæringuna í og lokaði ílátinu. Þá var það sem Chieko var eitthvað að spyrja um berin og ég fattaði að ég hafði gleymt berjunum sem voru inni í ískáp! tæpt kíló af sólberjum! Svo ég neyddist til að opna ílátið aftur, hella hratinu úr grisjupokanum og hella sólberjunum í hann. Og af því ég nennti eki að vera að taka þau í tvennu lagi þá setti ég pokann yfir fötuna og hvolfdi. Og auðvitað þurfti síðasti skammturin að dreifa sér gersamlega um allt eldhúsgólfið! Og ég sem var nýbúinn að þrífa upp allt berjasullið frá hinum berjunum. Síðan var auðvitað meiriháttar pein að kreista þessi ísköldu ber! Sérstaklega þar sem ég var helaumur fyrir. Eftir að ég hafði kreist eins og ég gat setti ég allt hratið í pokann aftur og gat rétt svo lokað honum.

Það sem átti að vera 12 lítra lögun var nú orðin 14 lítra! Og ég vona bara innilega að þetta takist sæmilega. Hef aldrei fokkað þessu eins illilega upp eins og núna! Allavega byrjaði þetta að bobbla í morgun sem er góðs viti.

Leggja orð í belg

22.08.2008 14:44 Jess!!!!!!!!

Ég hef nú svo sem aldrei verið mikið fyrir að horfa á handbolta og eiginlega alltaf viss um að við mundum nú örugglega tapa þessu niður þó svo við byrjuðum vel. Nú verð ég bara að éta þetta allt ofan í mig! Frekar erfitt að einbeita sér að vinnu núna, held að 50% landsmanna séu bara að skála í kampavíni þessa stundina!

Og ég er bara hræddur um að ég muni vakna snemma á sunnudaginn og horfa á úrslitaleikinn. Og það er nú mikið sagt fyrir mig.

Leggja orð í belg

03.08.2008 17:23 Græjur eru góðar!

Nú kemur smá græjublogg af því ég sit hér alveg í skýjunum! Eins og sumir vita er ég með einn digital magnara (Pioneer) og einn gamlan Surround magnara (JVC). Þegar ég fékk mér digital magnarann þá komst ég að því að hann var ekki nærri eins góður fyrir tónlist eins og JVCinn en hann var hisn vegar nógu fullkominn til að geta verið formagnari fyrir annan magnara. Svo ég tók mig til og tengdi þetta þannig að stóru hátalararnir fyrir hægri/vinstri voru tengdir við JVCinn og tengdi hann svo við hinn þannig að ef still var á VCR1 á JVCinum þá heyrðist það sem verið var að spila á Pioneerinum.

Gallinn var bara sá að styrkurinn úr formagnaraátpúttunum var svo lítill að ég þurfti alltaf að hækka hressilega í JVCinum til að það heyrðist nokkuð, sem orsakaði það að ef maður var að hlusta á lágum styrk þá var suðið alveg svakalegt.

Síðan í dag dreif ég mig loksins í því að tengja airportinn beint í JVCinn í stað þess að tengja han með ljósleiðara í Pioneerinn og viti menn! Ég byrjaði á að tengja í vitlaust input, Tape2/út, en samt heyrðist tónlistin þegar stillt var á VCR1 eins og venjulega. Og hljómgæðin eru 100 sinnum betri!! Ég er búinn að sitja eins og dáleiddur og hlusta á allt sem hljómar best. Það svoleiðis hringlar í græjugeninu í mér!

Nú er þetta sem sagt þannig að iTunes sendir tónlistina yfir þráðlaust net í airportinn og þaðan er analog tenging (samt sama socket og ljósleiðaratengið, brilliant!) yfir í JVC magnarann. Ég er reyndar aðeins að bústa neðstu og efstu tíðnirnar en hljómurinn er alveg fáránlega flottur!

Leggja orð í belg

20.07.2008 22:04 Litli-Brúnn búinn...

Sjitt hvað maður er þreyttur! Ég get ekki sagt að ég sé þunnur en mér líður eins og ég sé nýkominn til Japans og ekki búinn að sofa í sólarhring.

Þetta var sennilega skemmtilegasta Litla-Brúnsferð sem ég hef farið í! Allavega síðan við byrjuðum að fara í Þrastalund. Veðrið meiriháttar gott og fólkið ferlega skemmtilegt. Og drykkjuleikurinn í gær líka alveg hrikalega skemtilegur nema það voru alltaf sömu mennirnir sem töpuðu svo við hinir fengum ekkert að drekka af Tópasinu. Reyndar kannski ágætt því ef ég hefði drukkið mikið af því hefði ég ábyggilega verið verri í dag.

Annars var eitt hrikalega fyndið sem gerðist. Ég vaknaði í morgun rétt fyrir hádegi og fór með eina tóma bjórflösku frá mér niður að á og náði mér í vatn. Ég skildi síðan flöskuna hálffulla af vatni eftir á borðinu og fór að pakka saman. Þegar ég rölti svo framhjá borðinu stuttu seinna þá voru Jóhann og Hannes sestir þar niður að fá sér að borða. Svo ég teygði mig í fjórflöskuna og tók góðan sopa og ég hef aldrei séð Hannes missa svona andlitið :). Ég ætlaði að fara að ljúga einhverju, sagði að ég byrjaði gjarnan snema að rétta mig af, en hélt svo ekki andlitinu sjálfur, sagði þeim að þetta væri bara vatn. :). Þetta hefði reyndar verið mun effektívara ef ég hefði verið með rauðvínsflösku, man það næst!

Síðan er það bara Tenerife á þriðjudaginn!

Leggja orð í belg

15.07.2008 20:33 !!!!!!!!

Else er ólétt!!!!! Vika 9!!

Leggja orð í belg

14.07.2008 21:41 Húmor

Stundum getur borgað sig að horfa á þætti eins og "Are you smarter than a fifth grader". Ekki af því maður lærir svo mikið á þeim heldur af því það kemur einstaka sinnum fyrir að essir krakkar eru fyndnir!

Í gær var einn af þátttakendunum 35 ára einkaþjálfari, auðvitað íturvaxinn eftir því, og ég tók eftir að hann valdi fyrst stelpurnar úr krakkahópnum sem hjálparhellur. Allavega, þegar stelpa númer 2 kom upp þá spurði þáttastjórnandinn hann hvaða svið hann vildi velja næst. Einkaþjálfarinn byrjaði þá á að segja hvað litla 10 ára stelpan við hliðina á honum hlyti nú að vera gáfuð og að hún mundi nú hjálpa honum ef hann lenti í ógöngum.

Og hvað haldiði að stelpan segi?!

"Are you flirting with me?!"

Leggja orð í belg

Gudni 15.07.2008 20:21
Sæll Gísli,
rakst fyrir tilviljun á vefútgáfu af bók af þíns, við erum fjórmenningar, erum báðir komnir frá Halldóri Gíslasyni sem fæddur er á Hvaleyri við Hafnarfjörð 1822 og gat ég þá loks tengt mið blóðböndum við Hafnarfjörð þar sem ég hef búið frá 4 ára aldri :)
Gaman að geta lesið um afa þinn á netinu.
Bestu Kveðjur,
Guðni Gíslason, Jónssonar, Elínar Gísladóttur, Halldórssonar.

08.07.2008 22:04 Siglufjörður

Þá er helgin afstaðin. Og Siglufjörður var alveg meiriháttar! Jafnvel þótt við keyrðum bandvitlausa leið, keyrðum næstum alveg til Akureyrar áður en við sveigðum inn til Siglufjarðar. Allavega er ekki við mig að sakast þar, hef aldrei verið í leiðsögumannahlutverkinu í bíl úti á landi. Annars var svo mikil þoka á leiðinni að mér var hætt að vera sama. Þetta var það svart stundum að maður rétt sá í fjallshlíðina til vinstri, ekkert til hægri og svo sást ekki í næstu stiku við veginn. En þetta hafðist nú allt saman.

Tónleikarnir tókust líka bara mjög vel. Hef aldrei séð Gunnstein áður gefa okkur þöms öpp í lok lags :).

Á eftir var svo grill og pottur heima hjá Birnu, en mamma hennar á hús rétt við grunnskólann þar sem við gistum. Eftir að hafa grillað fórum við nokkur í íþróttahús staðarins þar sem var verið að kenna skoska (að ég held) þjóðdansa. Allavega var þetta mjög keimlíkt því sem ég lærði úti í Skotlandi á EJC 98, fyrir tíu árum síðan. Og eftir að hafa dansað þar í nokkurn tíma og svo b0ggað strák og stelpu sem voru í prívat trampolín sessjón fór ég aftur til Birnu til að fara í pottinn.

Þegar ég loksins fór upp úr pottinum, eitthvað um fjögurleytið, fór nú fyrst að draga til tíðinda. Ég hafði skipt um föt í herbergi uppi á eftir hæð en þegar ég ætlaði að fara aftur í fötin þá voru þau ekki þar! Svo næsta hálftímann var hálfnakinn, blindfullur og pirraður ungur drengur að ráfa um allt hús í leit að fötunum sínum! Á endanum fann ég þau undir sænginni þar sem Birna svaf við dyrnar út á pallinn! Ekki hugmynd um hvernig þau komust þangað. Þá átti ég bara eftir að finna jakkann minn og kreditkortaveskið en ég leyfði Einari að fara að sofa og rak krakkana sem eftir voru í burtu heim í grunnskóla.

Þegar ég kom þangað yfir var ég enn eitthvað svo æstur að ég ákvað að setjast með síðasta bjórinn minn inn í kaffistofu þar sem fyrir voru Andri, Hildur og Karl. Ég er viss um að þau tvö síðarnefndu hafi nú óskað þess að ég færi að hypja mig því ég hálfsofnaði á öxlinni á Hildi :). Seint og um síðir fattaði ég þó sem betur fer að það væri kannski sniðugt að fara að leggja sig inn í herbergi og skilja þau eftir ein.

Daginn eftir gerði ég aðra tilraun til að finna jakkann minn og kreditkortaveskið og sem betur fer fannst þetta allt í herberginu þar sem Birna og svo Einar sváfu. Ég hallast annars að því að Einar hafi verið fyllri en ég þarna um kvöldið því þegar ég vakti hann klukkan 3 um daginn þá var hann með ryðguðustu rödd sem ég hef nokkurn tímann heyrt! Og hefur Einar nú oft verið rámur áður!

Við lögðum svo af stað í bæinn um fjögurleytið, ég, Gauti, Andri og Anna Sigrún, hlustandi á ipodinn minn, svo ipodinn hans Andra og svo barnalagadiskana hennar Önnu. Geðveikt stuð! Komum við á Varmalandi hjá mömmu og pabba hans Andra. Fyrsta sinn sem ég sá mömmu hans og fyrsta sinn sem ég heyri pabba hans tala. Þið sem hafið séð hann vitið að Andri er eins og snýtt út úr nösinni á honum.

En já, frábær helgi!!

Leggja orð í belg

29.06.2008 19:57

Skellti mér á tónleikana í gær, svona aðallega til að taka myndir fyrir Chieko. Þvílíkur fjöldi! Það var þvílíkur haugur af fólki og erfitt að feta sig gegnum þvöguna því það var svo mikið af fólki sem sat eða lá í grasinu á teppum eða svefnpokum. Ég get nú samt ekki sagt að tónlistin sjálf hafi hrifið mig frekar en fyrri daginn.


Annars það sem setti mestan svip á þetta allt saman var það að þar sem ég hafði hitt Nobuko og vinkonu hennar alveg við sviðið kom aðvífandi strákur sem var alveg blindfullur. Hann var samt ekkert ókurteis, kynnti sig og heilsaði okkur öllum. Bauð okkur meira að segja sopa úr Apfelkorn flöskunni sinni sem við þáðum reyndar ekki en hann hélt hátt á lofti, sveiflandi henni í takt við tónlistina, á milli þess sem hann kallaði "Björk!!", "BJÖRK!!!", "Ég elska þig!!". En honum tókst samt einhvern veginn ekki að fara neitt í taugarnar á okkur þremur, nema kanski þegar hann byrjaði að kyssa fimmtugu japönsku konuna sem stóð fyrir framan hann á hausinn. Hins vegar voru gæslugaurarnir ekki jafnhrifnir af honum, enda var hann ekki bara að sveifla flöskunni yfir höfði sér heldur líka plastpoka með bjórbirgðum sem hann hafði í hinni hendinni. Og þegar þeir höfðu komið þrisvar til hans og beðið hann um að hætta þessu og eftir að hann hafði hent bjórdós upp á svið og kallað fram í tónlistina að hann elskaði Björku, þá var hann loks fjarlægður. Og þótt hann hafi áður verið búinn að segja einum í gæslunni að fokka off, þá tóku þeir ekkert hart á honum. Lyftu honum bara yfir girðinguna og leiddu hann burt.

Leggja orð í belg

23.06.2008 00:46 Brúðkaup á Íslandi

Hlustaði einhver á Bylgjuna í dag?! Einhvern veginn hélt maður að svona lagað gerðist bara í Bandaríkjunum og ekki hér.

Allavega þá barst þættinum bréf, reynslusaga úr brúðkaupsveislu sem hafði átt sér stað um helgina.

Í þessari brúðkaupsveislu voru menn komnir misvel í glas, haldandi ræður eins og gengur og gerist. En þó var þarna ein stúlka sem var bindindismanneskja sem seint og um síir kvað sér hljóðs. Hún talaði um hvað athöfnin hefði nú verið falleg en reyndar var einn hluti hennar sem hún saknaði. Það að presturinn spurði hvort einhverjir viðstaddir væru á móti ráðahagnum. Því hún viðurkenndi sjálf að hún væri ástfangin af brúðgumanum. Hún hafði oft reynt að safna kjarki til að tala við hann en aldrei gert það. Núna væri hreinlega of erfitt að bera þetta á bakinu svo hún vildi spyrja hann hvort hann hefði tilfinningar til hennar. Því hún vildi ekki þurfa að horfast í augu við það að hún hefði tapað honum aðeins af því hún var kjarklaus.

Þetta kallast að varpa sprengju! Fyrst var víst bara dauðaþögn. Síðan stóð brúðurin upp og bað veislustjórann vinsamlegast um að fjarlægja þessa stúlku. Sneri sér svo að manninum sínum og spurði hann hvað hann hefði að segja. Hann þagði fyrst en sagðist síðan ekki vilja taka þátt í þessum sirkus. Þá rauk brúðurin út og skildi veisluna eftir, sem síðan bara leystist upp. Það fylgdi svo ekki sögunni hvort brúðguminn hafi rokið út á eftir henni en eitt er víst. Það hefur verið mjög undarleg stemmning á brúðkaupsnóttinni!

Leggja orð í belg

20.06.2008 18:30

Jæja, dúllurnar mínar! Þá er þessi vika a renna sitt skeið á enda. Þvílíkt sem er búið að gerast! Og bara svo ég gleymi þessu ekki öllu af því ég er orðinn svo gamall, þá ætla ég að rekja það hér.

16. júní
Salsakvöldið þennan mánudag var haldið á Miklatúni þar sem við grilluðum og dönsuðum svo á eftir. Alveg ótrúlega gaman!


17. júní
Mitt fyrsta "gigg" með sirkushópnum. Allavega það fyrsta sem ég fæ borgað fyrir og það fyrsta þar sem ég gleymist ekki. Vorum 5 saman í Hljómskálagarðinum að kenna krökkum að standa á boltanum, standa á rola bola, nota húllahringi og svo diska á priki og juggla með boltum. Það stóð til að við værum með fjórar stöðvar svo að einn af okkur 5 gæti alltaf verið í pásu. En einhvern veginn var þetta svo gaman að ég tók mér enga pásu. Fyrst þegar mér datt í hug að ég ætti nú kannski að dreka eitthvað þá var klukkan orðin 20 mínútur yfir fjögur en þetta átti að vera búið kl 5, byrjaði kl 1. Svo þá fannst mér einhvern veginn ekki taka því að fara í einhverja pásu enda nóg að gera.


19. júní
Þennan dag byrjaði ég á að fara í þrekpróf. Það var farið af stað með samkeppni í vinnunni í fyrra þar sem allir gátu farið í þrekpróf og síðan yrði mælt aftur eftir ár og veitt verðlaun fyrir besta árangurinn. Ég átti nú ekki von á miklu því ég hef ekkert getað hlaupið út af hnénu á mér. Auk þess sem dagsformið var ekki það gott, hafði átt erfitt með að sofna nóttina áður og endaði á að fá mér tvo bjóra (!!) og sofnaði einhvern tímann að verða fjögur. Átti að mæta í prófið kl 9.

Fyrst var það fitumælingin. 18,6%, en árið áður hafði ég verið 18,4%. Byrjaði ekki vel. Þá kom vigtunin. Og mér fannst vigtin þeirra í fyrra nú vera eitthvað skrýtin af því ég hafði aldrei mælst eins þungur og þá. Og þetta var greinilega sama vigtin núna. 69,3kg!! Hef aldrei á ævinni mælst svona þungur. En góðu fréttirnar: miðað við þessar tölur hafði ég bætt við mig vöðvamassa! YES!!

Svo kom hlaupið. Ég byrjaði á að finna aðeins til í hnénu en þegar hraðinn jókst hætti ég að finna fyrir því. Í heildina fann ég líka lítið fyrir því að hafa sofið í 5 tíma, þó svo ég hefði nú ábyggilega verið betri ef ég hefði sofið lengur. Samkvæmt blóðprófunum var ég í aðeins verra formi en í fyrra en það munaði næstum engu.

Svo að í heildina var ég bara helvíti ánægður með þetta!

20. júní

Loksins var komið að því að sækja sófann inn í InnX. Og þvílíkur munur á stofunni hjá mér núna!!



Leggja orð í belg

17.06.2008 00:25

Var aðð dansa salsa í kvöld á körfuboltavellinum á Miklatúni. Alveg geððveikt gaman! Fyrst grilluðum viðð viðð leikvöllinn (sem ég hafðði aldrei séðð þarna) og dönsðum svo á körfuboltavellinum (sem ég hafðði heldur aldrei tekiðð eftir). Ég man aðð ég var frekar svekktur aðð þetta væri ekki á Sólon þegar þetta var auglýst en eftirá var þetta alveg frábær hugmynd!! Og veððriðð var braa fínt svona aðð mestu leyti. Allavega rigndi ekki neitt.

Ég tók meira aðð segja eitthvaðð af myndum og Ingunn tók svo fleiri á mína vél. Þær munu verðða aððgengilegar hér alveg á næstu dögum.

Svo vona ég aðð þiðð mætiðð öll á morgun í Hljómskálagarððinn þar sem ég og fleiri verðða aðð kenna sirkuslistir, í suððaustur horni garððsins.

Leggja orð í belg

10.06.2008 23:06 Sirkusskólinn

Hæ krakkar!

Ef eitthvert ykkar hefur sambönd í einhverjum íþróttahúsum, þá endilega látið mig vita. Seltjarnarnesbær er í þann mund að henda okkur út úr húsinu hjá þeim! Eins og díllinn var góður við þau. Við erum ekki að taka inn neina peninga á þessu, vorum einungis að nýta ónýtta tíma í fimleikaaðstöðunni þeirra, í skiptum fyrir það að við mundum sýna fyrir bæinn ókeypis hvenær sem er. Og þessi hópur er orðinn sá mest pró á landinu! Ég hefði haldið að þetta væri skrautfjöður í hatti Seltjarnarnesbæjar en svo er greinilega ekki lengur. Síðan í janúar höfum við fengið að vera þarna fimm sinnum í viku en núna, með nýrri yfirstjórn í húsinu, fáum við bara að vera þarna tvisvar fram í ágúst og síðan verður okkur sparkað út :(.

Koma svo, leggja orð í belg!

Leggja orð í belg

08.06.2008 12:46

Þá er kominn sunnudagur og ég svona að jafna mig eftir afmælið hjá Iðunni frænku. Sjitt hvað þetta var gaman! Skemmtilegasta fjölskylduboð sem ég hef farið í held ég.

Ég hef líka sjaldan hlegið eins mikið! Ebbi frændi kom til mín og spurði mig hvort ég hefði nokkuð fengið skilaboðin á MSN frá honum um daginn og ég mundi ekki eftir því. Við höfum reyndar næstum aldrei talað saman á MSN en eftirfarandi samtal átti sér stað fyrir cirka tveimur mánuðum:

"Gísli písli" loggar sig inn með komentið "It's Miller time!", klukkan 5 eftir hádegi.
Ebbi: "Blessaður Gísli, eru menn bara dottir í það?"
Gísli: "Já, er með bjór hérna sem er kominn á síðasta söludag, víst eins gott að drekka hann."
Ebbi: "Ertu bara einn eða eru einhverjir með þér þarna?"
Gísli: "Ég er bara að detta í það með einhverjum perrum á netinu".

Ebbi veit ekki hvað hann á að segja, er að kynnast alveg nýrri hlið á frænda sínum...

Gísli: "Þú ert nú annars bara fjandi myndarlegur. Þú vilt ekki bara kíkja í heimsókn?"

Ebbi verður enn vandræðalegri...

Ebbi: "Hmm..ég veit það ekki. Eru einhverjar stelpur þarna líka?."
Gísli: "Nei, það yrðu bara við tveir, myndum bara hafa það gott saman."

Nú fer Ebbi að tékka á hvort hann sé ábyggilega að tala við réttan mann. Sér að "Gísli Leifsson" er ekki loggaður inn. Hefur aldrei verið sneggri að blokka neinn eins og þennan perra :).


Leggja orð í belg

04.06.2008 22:50 Vídeóvél

Jæja, þá er hugsanlega að líða að því að ég fái nýja vídeóvél í stað þeirrar sem fór í ábyrgðarviðgerð fyrir meira en ári síðan hjá Hans Petersen. Loksins kom að því að þeir sögðu að ég gæti bara mætt niðureftir með kvittunina og fengið innleggsnótu. Ég vona bara að þeir séu með einhverjar vélar því heimasíðan þeirra sýndi engar. Þá get ég væntanlega tengt hana við makkann og notað hana sem súper dúper vefmyndavél og þá þarf ég ekert að nota pésann gamla aftur.


Og hey, nú get ég orðið breytt síðunni minni rímótlí! Svo gott sem allt geymt í mysql. JEI!!

Leggja orð í belg

01.06.2008 22:15 Formaður kórsins

JEI!! Ég er orðinn formaður kórsins! Og allir mínir menn og mínar konur náðu kjöri líka. Hlakka alveg hrikalega til að fara að vinna í þessu.


Nú verður sko djammað feitt! Plús það að nú förum við Andri í það að rita sögu kórsins. Allar utanferðir sem hann hefur farið í, sem eru orðnar ansi margar. Sjitt, ég er núna búinn að fara sjö sinnum út með þessum kór en ekki sex sinnum. Verð að fara að læra að telja.

Leggja orð í belg

31.05.2008 11:29 Kominn aftur í raunheiminn

Jæja, þá er maður kominn aftur til landsins og byrjaður að vinna upp svefntapið. Alveg mögnuð ferð auðvitað! Er ekki búinn að athuga hversu margar myndir ég tók en þær eru mjög margar. Mun setja þær inn núna á eftir.

Svo er ég að fara að bjóða mig fram sem formann kórsins! Jei!

Leggja orð í belg

16.05.2008 00:31

Djöfull var nú gaman í kvöld. Fór í smá salsa djamm á veitingastaðnum Santa Maria, þar sem Mike er að vinna. Þar var reyndar einhver misskilningur á ferðinni því um leið og eigandinn sá að við vorum að dreka sama sem ekki neitt á barnum, þó svo helmingur hópsins hafði fengið sér að borða þarna, þá bara rak hann okkur út. Það var reyndar ekki svo slæmt því einhver, sennilega Jói, fékk þá hugmynd að fara niður á Austurvöll og dansa þar. Og þar vorum við í rúman klukkutíma, ýmist í rueda eða bara í paradansi. Einn úr hópnum bakkaði bara bílnum sínum upp að, opnaði skottið og hækkaði í græjunum. Alveg geðveik tilfinning að dansa svona utanhúss niðri í bæ! :) Og auðvitað fullt af fólki sem stoppaði og horfði á, geðveikt stuð!

Svo er það bara Pólland eftir tvo daga, eða öllu heldur Berlín. Ég er einhvern veginn ekki enn buinn að fatta að ég sé að fara þetta, búið að vera svo mikið að gera í vinnunni að ég hef hugsað um fátt annað. En þetta er víst alveg að bresta á.

Leggja orð í belg

10.05.2008 02:56 Eldur

Jæja, þá er ég búinn að prófa eitt nýtt allavega. Fórum eftir sirkusæfingu heim til mín til að við gætum öll séð Svalbarða. Alveg ótrúlegt hvað við komum vel út miðað við hversu mikið klikk var í gangi. Og ég var svo stressaður að það hálfa hefði verið feikinóg! Sem betur fer sást ekki þegar ég missti keilurnar!

Síðan fórum við heim til Lees og fórum að leika okkur með eld úti í garði hjá honum. Ég prófaði í fyrsta sinn í mörg ár að spúa eldi, eins óþægilegt og það nú er að hafa þetta ógeð uppí sér! Síðan kenndi Lee mér og Jóakim að éta eld, slökkva í honum uppí sér. Ég hélt nú að ég mundi ekki þora þessu en það var ótrúlega lítið mál. Mér líður reyndar núna svolítið eins og ég hafi verið að borða eitthvað sterkt karrý, brenndist pínulítið innan á vörunum en það er sama sem ekki neitt. Áður en við gerðum þetta prófuðum við að sleikja kyndilinn og að strjúka honum upp eftir hendinni á okkur. Ferlega skrýtið hvað það er í rauninni lítið mál.

Leggja orð í belg

26.04.2008 23:38 Gamlir tölvupóstar

Rosalega er nú gaman að fara gegnum gamla tölvupósta. Svipað eins og að lesa dagbók liðina ára eða gamlar bloggfærslur. Nema að þarna eru þetta hugsanir annarra um mann sjálfan en ekki bara mínar eigin hugsanir. Póstar frá gömlum kærustum, vinum sem maður hefur ekki heyrt í lengi af því maður hefur sjálfur ekki skrifað eða frá gömlum karlakórsmeðlimum. Skrifaði reyndar bara einn póst núna en á ábyggilega eftir að tékka meira á þessu fólki.

Svo eru bara vortónleikar á næsta leiti. Ég hef nú sungið ansi lengi í þessum kór en ég held að efnisskráin hafi aldrei verið jafnmetnaðarfull. Samt gek bara mjög vel á æfingunni í dag svo ég hef í raun engar áhyggjur af þessu. Verður brjálað stuð að syngja þetta allt úti í Póllandi!

Leggja orð í belg

08.04.2008 23:50 Kvöldmatur kl tólf

Jæja, klukkan orðin tólf og ég að borða kvöldmatinn, nýkominn af sirkusæfingu. Þetta er eitthvað sem allir ættu að prófa því þetta er svo HRIKALEGA gaman! Og svo þegar maður kemur heim, alveg búinn að keyra sig út, þá er bjórinn svo fáránlega góður.

Svo verð ég nú að fara að taka einhverjar myndir þarna. Finnst ég þurfa að skreyta þessa síðu með nokkrum myndum, jafnvel af sjálfum mér.

Og nú fer að styttast í að nýr sófi líti dagsins ljós í stofunni, eftir að hafa notað þennan rauða, útjaskaða sófa í 14 ár. Ég er allavega búinn að opna BoConcept bæklinginn aftur og búinn að ákveða hvernig ég vil hafa þennan blessaða sófa.

Leggja orð í belg

08.04.2008 01:22 Meira salsa

Ég er ekki enn sofnaður, enn smá high eftir salsakvöldið í kvöld. Og ég sem var viss um að ég mundi endast í mesta lagi til hálfellefu því ég svaf svo ferlega illa síðustu nótt. En nei nei, um leið og ég byrjaði að dansa var öll þreyta rokin út í veður og vind. Ótrúlegt hvernig dagsformið getur verið. Á laugardagskvöldið var ég alveg útsofinn en var bara með dansstíflu, gekk eki neitt. Núna kom þetta bara allt af sjálfu sér.

Og rosalega er svo gaman að dansa við stelpur sem brosa allan tímann!

Leggja orð í belg

06.04.2008 21:35 Salsahelginni lokið...

Og já, núna um helgina var Marina með vörksjopp með tilheyrandi salsaballi á laugardagskvöldinu. Sem svo sem væri ekki í frásögur færandi nema að ég var að dansa við stelpu sem ég hafði ekki dansað við áður á Thorvaldsen, man ómögulega í svipinn hvað hún heitir. En allavega, eftir að hafa dansað við hana við nokkur lög fórum við að kjafta aðeins saman og hún spurði mig hvað ég væri að gera annað en að dansa. Svo ég sagði henni frá sirkusskólanum og djögglinu og talaði um að salsa fyrir mig væri pínu svipað og djögglið. Nema í staðinn fyrir að vera nmeð 3 bolta þá væri ég með eina stelpu sem ég væri að búa til mynstur úr. Þá bætti hún við: "Já, og hún er svo með tvö brjóst og einn rass" :). Ekki oft sem ég heyri stelpur segja svona brandara :).

Leggja orð í belg

06.04.2008 21:30 Karl Petska

Fór á hreint út sagt ótrúlega tónleika á föstudaginn. Ég vissi svo sem að Karl í kórnum væri hrikalega klár en ekki að hann væri algjör snillingur! Vissi ekki að það væri hægt að gera svona hluti með rafmagnsfiðlu. Yrði ekert hissa á að sjá viðtal við hann í sjónvarpinu þar sem hann væri að segja frá því sem hann er að gera. Pottþétt enginn á Íslandi sem gæti leikið þetta eftir! Rosalega gaman að hafa séð hann eftir að hafa misst af fyrri tónleikunum hans.

Leggja orð í belg

24.03.2008 18:47 Svíþjóð

Jæja, þá er páskaferðinni lokið þetta árið. Skrapp til Svíþjóðar eins og undanfarin tvö ár nema að núna var ég ekki að heimsækja Palla heldur Else og Vojta, og það í Umeå.

Ég get nú ekki sagt að ég gæti búið í þessum bæ, fannst þetta alveg svakalega útiálandilegt, þó svo að þarna séu um 100 þúsund íbúar. Annars skiptir litlu hvernig staðurinn er þegar maður er að hitta vini sína. Alltaf jafngaman að hittast.

Veðrið hefði reyndar getað verið betra, alveg skítkalt, milli -7 og -12 allan tímann. Samt drifum við okkur út einn daginn og grilluðum kryddpylsur yfir opnum eldi við vatnið, sem var auðvitað ísilagt. Svo dreif ég mig út að hlaupa með Else á laugardagsmorguninn í 10 stiga frosti. Það var svo sem voðalega gott meðan á því stóð en ég var með alls konar nýja verki eftir þetta skokk, virðist ekki alveg vera kominn í form aftur.

Í dag ætlaði ég svo að vera alveg svakalega duglegur í að fara yfir kórlögin en í staðinn datt ég í það að lesa metadata úr jpg myndum. Og nú er ég mjög svo stoltur yfir að tilkynna að núna get ég sjálfvirkt velt myndum um 90 gráður til hægri eða vinstri um leið og ég set þær á vefinn hjá mér! Ótrúlega magnað!!

Leggja orð í belg

17.03.2008 19:26 Meira um viftur

Fór með viftuna aftur upp í Tæknibæ til að sjá hvort ég gæti fengið henni skipt en fékk þá að vita að þetta væri AMD vifta en ekki Intel. Og sennilega væri vonlaust að finna viftu fyrir svona gamlan örgjörva. Allt í lagi, maður hefur svo sem áður hent 2000 kalli út um gluggann.

Ég ákvað samt að gera eina tilraun enn, sjá hvort ég gæti beyglað viftuna einhvern veginn til að hún passaði. Og heyrðu, það þurfti nú ekki mikil átök til eftir allt saman!

Svo í staðinn fyrir að hávaðinn í vélinni fylli íbúðina þá er hún orðin nær hljóðlaus núna. Þvílíkur munur!

Svo er salsa kvöld í kvöld, Jei!!

Leggja orð í belg

10.03.2008 22:46 Viftur og hítsinkar

Nú kemur smá tölvunördablogg!

Ég ákvað núna loksins að gera eitthvað í hávaðanum í Linux vélinni minni svo ég fór og keypti nýja viftu. Svo upp á borð með vélina og úr með gömlu viftuna. Ég hafði aldrei skipt um viftu í nokkurri vél áður og það tók mig samanlagt tvo tíma og mikla Google og youtube leit til að komast að því hvernig ætti að gera það. Þurfti að taka minnið úr henni og var næstum búinn að skera mig margoft en á endanum tókst mér að ná fjandans kæliplötunni af.

Svo var málið að setja þessa nýju, fínu viftu í. Eftir u.þ.b. 5 mínútna tilraunir komst ég að því að kæliplatan sem fylgdi henni væri of stór. Svo það var ekki annað að gera en að setja gömlu viftuna í aftur. Ekkert sérstaklega auðvelt að setja kæliplötuna á aftur en það hafðist að lokum með hjálp skrúfujárns.

Svo set ég vélina aftur í samband en þá fæ ég bara þrjú píp og ekkert lífsmark. Svo ég fór og náði í stóra 19 tommu túbuskjáinn minn og tengdi við hana en ekkert kom á skjáinn. Þegar hér var komið sögu var ég viss um að ég hefði eyðilagt örgjörvann þegar ég setti kæliplötuna á aftur. Dauðsá eftir þessu öllu!

En rétt þegar ég var að gefast upp tók ég eftir því að á borðinu lágu tveir minniskubbar. Hmm..gætu verið tengsl þarna á milli? Það skyldi þó aldrei vera. Vélin upp á borð aftur, minnið í, aftur í samband en þá gerðist bara ekki neitt þegar ég ýtti á páer takkann. Sjitt! Ég hef steikt móðurborðið þegar ég setti minnið í. Ákvað samt að tékka á einu sem gæti valdið þessu. Og jú, hafði víst rekið mig í takkann aftan á spennugjafanum. Velti honum yfir á 1 og þá fór vélin í gang. Svo lét ég ping ganga og beið í ofvæni eftir að hún svaraði pinginu og loksins kom það! Hún var þá lifandi eftir allt saman!

Svo ég get haldið áfram að blogga :).

Leggja orð í belg

02.03.2008 23:39 Bakverkur dauðans!

Ég hef nú bara aldrei verið með svna fáránlega mikinn bakverk! Hefði nú ekki haldið að þessar nokkru misheppnuðu flikk flakk tilraunir í gær ættu að geta orsakað þetta. Var í mat hjá Sverri ásamt fyrrverandi Ráðgjafarfólki og fékk eina íbúfen hjá honum til að slá á þetta en hún hafði engin áhrif. Þá ráðlagði Vilborg mér að taka aðra og bryðja hana. Ég gerði það, ógeðslegasta bragð sem ég hef haft uppi í mér! En hún hafði heldur engin áhrif!!

Og í dag er ég búinn að vera alveg að drepast. Vona bara að þetta verði í lagi á morgun.

Leggja orð í belg

24.02.2008 19:33

Jæja, þá er þetta partý afstaðið. Hef sennilega aldrei verið með svona margt fólk hjá mér. Og ótrúlegt að ekkert glas brotnaði! Í staðinn var hellt niður hér og þar og Hannes skar sig. Brá ekkert smá þegar einhver kom til mín og spurði hvort ég ætti plástur því Hannes hefði skorið sig. Og þegar ég kem inn í eldhús þá heldur Hannes á stóra, beitta hnífnm mínum og er höndina undir krananum! Sem betur fer hafði hann nú ekki skorið sig á hnífnum.

En allavega, einhver gleymdi tsku hjá mér. Og í töskunni er hálfur peli af vodka. Gaman væri að vita hver ætti þetta.





Leggja orð í belg
Birna 25.02.2008 09:51
Takk fyrir kvöldið! Þetta var mjög gaman.

22.02.2008 00:06 Salsa

Kominn tími til að færa glóðaraugað aðeins neðar á síðuna.

Fór í kvöld eftir kóræfingu að hjálpa Önnu Maríu á salsa námskeiði sem hún var að kenna á. Trimmhópur á miðjum aldri sem hafði pantað hana. Þetta var í fyrsta sinn sem ég var að "kenna" á salsanámskeiði sem ekki var ókeypis. Ég reyndi annars eins og ég gat að grípa ekki fram fyrir hendurnra á Önnu svo ég var nú að aðstoða meira. En þetta var samt alveg hrikalega gaman! Væri alveg til í að gera meira af þessu.

Svo er raddapartý hjá mér á morgun. Sem betur fer byrjaði ég að taka til um síðustu helgi, og það áður en ég vissi að þetta partý yrði hjá mér.

Leggja orð í belg

15.02.2008 00:10 Myndin


Aumingja ég! Með glóðarauga. Og svo er ég líka sybbinn!

Leggja orð í belg

Gísli 15.02.2008 00:12
Hmm..eða kanski er ekert svo sniðugt að setja svona myndir af sér á síðuna. Má ekki láta neinn vita að ég hafi einhvern tímann verið svona ljótur!

14.02.2008 23:06 Glóðarauga

Jæja, ekki allir sem geta gefið sjálfum sér glóðarauga með því að sparka í augað á sjáfum sér! Mér tókst þetta sem sagt á sirkusæfingu á þriðjudagskvöldið, lenti á mjúkri dýnu úr sirka 180cm hæð, haus á undan og lappirnar á eftir, tókst að fá annað hnéð í mig.

Kannski ég noti nú tækifærið og smelli inn einni mynd hér. Þarf þá að vísu að breyta þessu þannig að ég geti það. Vil bara ekki að þið missið af mér svona krambúleruðum.

Og myndirnar mínar úr æfingabúðunum verða komnar á síðuna mína eftir tvær mínútur. Tékkið á þeim!

Leggja orð í belg

10.02.2008 23:46 Skálholt

Jæja, þá er maður kominn til baka heilu og höldnu úr enn einni Skálholtsferðinni. Brjálæðislega aman eins og venjulega.

Leiðin upp eftir gekk reyndar ekki áfallalaust fyrir sig. Það var svo hrikalegur vindur að rúðuþurrkurnar á bílnum hans Andra fuku út á hlið og virkuðu ekki eftir það. Vindurinn var svo mikill að Andri stóð ekki í lappirnar fyrir utan bílinn svo það var vonlaust að reyna að gera eitthvað í þessu á staðnum. Við vorum nokkra stund að spá í hvað við ættum að gera. Gauti vildi helst láta einhvern sækja okkur því það væri vonlaust að keyra bílinn svona í rigningunni. Við vorum rétt að koma að Litlu kaffistofunni og ákváðum að keyra þangað og sjá hvort það væru ekki einhverjir kallar þar sem gætu jafnvel gert við þetta. En þar voru bara tvær kellingar sem vissu ekki neitt um bíla svo nú voru góð ráð dýr. Við ákváðum þó undir lokin að láta reyna á þetta og sem betur fer gekk ferðin furðuvel án rúðuþurrkanna.

Sem sagt, ansi ólíkt því þegar við komum í Skálholt í fyrra eða hittífyrra, í rjómablíðu og dúndrandi
norðurljósum.

Leggja orð í belg

Harpa 12.02.2008 00:22
já þetta var mögnuð ferð!!
koma ekki myndir inn bráðum?

Gísli 13.02.2008 00:50
Jú, en ég þarf reyndar aðeins að ritskoða þær ;)

29.01.2008 22:51 Makkinn rúlar!!

Hrikalega er nú gaman að vera kominn á makka aftur. Ég var rétt í þessu að missa mig í widget dótakassanum. Tókst að finna eitt vægast sagt kúl! Ef ég er að spila lag í iTunes þá fæ ég fram dashboardið ýti á takka í þessu widgeti og það fer á amazon.com og nær í myndina á disknum! Svo ýti maður á einn takka og þá er myndin komin á lagið í iTunes! Ef ég hefði haft þetta þegar ég var að setja allar þessar myndir inn í iTunes hjá mér hefði þetta sparað mér ómælda vinnu!

Ég bjóst við að þurfa að gera dauðaleit að kvittuninni fyir vídeóvélina, tvö og hálft ár síðan ég keypti hana, en ég fann hana sem betur fer frekar fljótlega. Var bara búinn að rústa út úr einum skáp og tveimur skúffum. Svo nú ætti Sónn að geta gert við hana ókeypis. Voru tveir mánuðir eftir af ábyrginni þegar ég fór með hana í viðgeð ábyrgðinni þegar ég fór með hana í viðgerð í maí í fyrra.

Leggja orð í belg

borkur 30.01.2008 12:45
Ég er enn að bíða eftir mínum fyrsta makka. Fæ líklega MacBook Pro kjöltu. Verður gaman að kynna sér alveg nýtt OS (ok, þetta er unix based, en samt töluvert örðuvísi en öll hin linux bragðefnin). Ertu búinn að sjá nýja MacBook Air? þetta kvikyndi er þynnri en amma andskotans á sunnudagsmorgni

Gísli 03.02.2008 23:45
Nei, hef ekki séð hana nema á myndum. Fékk hins vegar að prófa iPod touch í fyrsta sinn í gær, fékk mig til að kitla alveg hrikalega í græjugenið!

22.01.2008 22:36 Kúba kafli 2

Til að gera langa sögu stutta þá vorum við í danstímum á hverjum degi angað til í seinni vikunni. Okkur langaði að ferðast eitthvað smávegis og að varð fyrir valinu að fara til Trinidad. Þessi bær hefur lítið breyst í fimm ár, enn sama hrikalega fátæktin og allir að reyna að lifa af túristunum.

Fyrsta sjokkið kom þegar við mættum á staðinn og í ljós kom að þrír okkar, ég meðtalinn, vorum hvorki með vegabréf né visað með okkur. Ég hafði valið sjálfur að verða veiddur þaþr sem rútan stoppaði því ég vildi ekki gista með tveimur öðrum í herbergi. En auðvitað vildi fólkið ekki sjá mig þegar ég var ekki með vegabréf, voru ekki til í að taka neina sénsa. Eftir þó nokkurt þóf kom upp úr krafsinu að við gætum gist hja einhverri vinkonu þeirra sem bjó þarna rétt hjá. Heimilisgæðin á þeim stað voru auðvitað vel fyrir neðan það sem var á fyrsta staðnum en allavega var þetta þak yfir höfuðið. Gömul kona sem virtist búa ein með barnabarninu sínu.

Fyrstu nóttina vaknaði ég kringum hálffimm við það að allt í kringum húsið voru hanar að gala. Þar af virtist einn vera rétt utan ivð gluggahlerann. Ekki sofið meira þá nóttina. Um daginn fórum við síðan í bátsferð út í einhverja eyju þar sem við snorkluðum og fengum að borða og drekka.

Næstu nótt gerðist nokkuð sem ég hef aldrei lent í áður. Klukkan hefur sjálfsagt verið kringum fjögur um nóttina. Allavega þögðu hanarnir. Ég er svona hálfsofandi en finnst einhvern veginn eins og einhver sé í herberginu. Sem samt var því sem næst óhugsandi því gluggahlerinn var læstur innan frá og hurðin var sömuleiðis læst. Allavega, ég opna augun og sé að á rúminu við hliðina á mér liggja tvær konur, liggja á maganum styðjandi sig við olnbogana og horfa beint fram. Sú vinstra megin leit út fyrir að vera kringum 16 en hin eitthvað yfir þrítugt. Þær voru það líkar að þær hefðu getað verið móðir og dóttir, litu út fyrir að vera kúbanskar en voru ekki svartar. Þarna ligg ég sem sagt, nakinn, og horfi á þær tvær alveg þrumulostinn! Einhvern veginn var ég ekkert hræddur en hugsaði bara "hvað er í gangi hérna!!". Svo þegar ég hafði horft á þær í kannski fimm sekúndur þá hreinlega hurfu þær. Ef þetta hefur bara verið draumur þá hefur hann verið ansi skrýtinn! Hef allavega aldrei lent í því að sjá eitthvað svona skýrt fyrir augunum og vakna svo ekki aftur, vitandi að þetta var allt draumur. Eftir þetta svaf ég nú ekki mikið en leið samt ekkert illa. Ég var greinilega einn í herberginu, engin slæm tilfinning.

Morguninn eftir var ég að hugsa um að spyrja konuna hvort hún kannaðist við einhverja drauga í þessu herbergi. Svo kunni ég ekki við það, vissi ekki hvernig draugur er á spænsku og var hræddur um að hún héldi að ég væri geðveikur :). Sé eiginlega hálfpartinn eftir því núna.

Leggja orð í belg

borkur 24.01.2008 19:01
er þetta ekki bara það sem kallað er á útlenskunni "fantasy"? :)
nú, eða að þú sért kannski bara geðveikur? Væru fáir hissa ef það væri loks staðfest ...
Borkur

Gísli 26.01.2008 00:52
Ef þetta var óskhyggja eða draumur, af hverju var hún þá með dóttur sína með sér? Og fullklædd í þokkabót! En já, kannski var þetta bara mitt fyrsta geðveikiskast. Allur Bucaneroinn sem ég drakk farinn að segja til sin!

ebw1 26.01.2008 11:22
þetta hafi þá verið dóttir konunnar, fyrst hún bjó ein með barnabarninu

21.01.2008 18:39 Kúba

Þá er ég loksins kominn heim frá Kúbu. Alveg frábær ferð en alveg ótrúlega gott að vera kominn heim samt!

Það fyrsta markverða sem gerðist var að mér tókst að stúta á mér tánni! Á 3. degi, þegar ég var að labba upp stigann í heimagistingunni minni með ferðatöskuna, í sandölum, tókst mér að reka tærnar svo harkalega í steinþrepin að ein þeirra fór úr lið! Stóð bara út í loftið. Svo það var ekkert annað að gera en að grípa í kvikindið og skella henni á sinn stað aftur. Fyrst var ég ekki að kippa mér neitt mikið upp við þetta en Eddu og Kollu leist ekki neitt sérstaklega vel á þetta. Það gekk eftir sem þær sögðu, að eftir því sem leið á daginn fór verkurinn að versna í tánni svo að ég gat lítið sem ekkert dansað.

Og enn er táin stokkbólgin. Þarf kannski að láta eitthvað kíkja á hana.

En meira seinna.

Leggja orð í belg

01.01.2008 19:13 Nýja bloggið mitt

Jæja krakkar mínir. Þá er loksins komið að því að hleypa þessu nýja, heimasmíðaða bloggi af stokkunum. Svo vona ég bara að þetta virki allt sæmilega. En verið nú endilega dugleg við að setja inn athugasemdir!

Til að setja athugasemd þarf maður að stofna sig sem notandi og að sjálfsögðu er hægt að nota íslenska stafi og yfirleitt hvað sem er í notandanafninu. Það er ekki hægt að setja neitt html í komment út af öryggisástæðum. Svo ekki fara að reyna að setja einhver javascript í kommentin ykkar :).

Svo vona ég bara að þetta virki sæmilega meðan ég er úti á Kúbu. 4 dagar þangað til!!

Leggja orð í belg

Unnur Sigmars 02.01.2008 13:07
Blessaður Gísli.

Mér skilst að ég sé sú fyrsta sem kvitta hjá þér.
Ætla bara að óska þér gleðilegs nýs árs og takk fyrir allt gamalt og gott og skemmtu þér nú vel á Kúbu!!!

Kv. Unnur.

Chieko 04.01.2008 14:21
Akemashite Omedeto!
Gleðilegt ár!